Námskeið fyrir sykursjúka
Námskeið fyrir sykursjúka verður haldið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja dagana 25. október – 22. nóvember. Námskeiðið er einu sinni í viku, á þriðjudögum, kl. 17 – 18:30 og er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Markmið námskeiðsins er fyrst og fremst að auka þekkingu sykursjúkra á sjúkdómnum, meðferð hans og fylgikvillum. Áhersla er lögð á ábyrgð einstaklingsins á eigin meðferð.
Umsjón með námskeiðinu hafa Sigrún Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur í sykursýkismóttöku og Sigríður Eysteinsdóttir næringarráðgjafi.
Aðrir sem koma að námskeiðinu eru Gunnar Valtýsson læknir, Sara Dögg Gylfadóttir félagsráðgjafi, Sonja Middelink sjúkraþjálfari og Helga Ragnarsdóttir fótaaðgerðafræðingur.
Fyrsta námskeiðið er fyrir sykursjúka með tegund 1 eða 2, sem nota insúlín.
Fleiri námskeið verða haldin á næsta ári og verða auglýst síðar.
Nánári upplýsingar og skráning er hjá Sigrúnu Ólafsdóttur í síma 771-4515.