Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Næringarefnameðferð við sveppasýkingum
Föstudagur 8. júní 2007 kl. 08:50

Næringarefnameðferð við sveppasýkingum

Sveppasýkingar eins og t.d. „candida“ verða æ algengari. Ein ástæða sem fólki sést oft yfir varðandi þetta er hin aukna sýklalyfjanotkun (oft þrisvar á ári) en sýklalyfin raska jafnvægi gerlanna í þarmaflórunni og orsaka því oft þarmatruflanir.
 
Á meðan þessu jafnvægi líkamans er ekki raskað eru gersveppir ekki skaðlegir. Ef fyrir eru meltingartruflanir versna þær við sykur- og áfengisneyslu. Hver einasti bakari veit að sykur nærir gerið. Þegar sjúklingi eru gefin lyf við svepaasýkingum til dæmis candida án þess að vera um leið ráðlagt að forðast einfalt kolvetni eins og sykur, hveiti og áfengi er vafasamt að lyfjameðferðin borgi  sig. Það hafa fyrir löngu  verið færð  vísindaleg rök fyrir þvi að mannfólkið sé af tveimur tegundum, önnur má borða sætan mat svo og næringu sem er nálæg sólu. Hin má borða súran mat svo og næringu sem kemur beint úr jörðu t.d. kartöflur og rætur. Þessi tegund tengist tunglinu.
 
Fái húð, neglur og hár ekki nóg sink er hætta á að þar komi fram sveppasýking.  Fólk sem þjáist af langvarandi sjúkdómum eins og blóðleysi og sykursýki fær gjarnan sveppasýkingar því veikt ónæmiskerfi getur ekki varið sig nægilega vel. Vegna þessa er candida oft að finna í næringu viðkvæmra einstaklinga. Mjólkuróþol sem oft hefur astma og exem í för með sér tengist stundum  sveppasýkingum. Hina þekktu mjólkurskán er hægt að koma í veg fyrir með því að forðast allar mjólkurafurðir og auka kalsíumneyslu. Munnangur sem oft kemur fram hjá börnum er einfaldlega hægt að losna við með því að skola munnin með tei úr íslenskum fjallagrösum og með því að forðast allt sætt sem og mjólkurafurðir.
 
Reykingafólk er í sérstökum áhættuhópi varðandi sveppasýkingar, aðeins ein sígaretta getur þrengt slagæðarnar um einn fjórða. Því þarf að gæta vel að öllum næringarefnum sem eiga að sjá um betra blóðstreymi þegar um meðferð við sveppasýkingu er að ræða. C, E og B- vítamín sem og bioflavo sem eru í bókhveiti og ávöxtum þarf að neyta í auknum mæli.
 
Hin daglega næring er mikilvæg og fólk býr við mismunandi mikið streituálag hvort sem er líkamlegs eða andlegs eðlis en maðurinn hefur í seinni tíð lært að treysta náttúrulækninum eða lækninum sínum varðandi það að fá góða yfirsýn og meðhöndlum varðandi  sýklalyfjameðferð.
 
Höfundir er náttárulæknir, sálfræðingur og rithöfundur.
Birgitta Jónsdóttir Klasen
 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024