MSS svarar kalli um símenntun fyrir heilbrigðisstarfsfólk á Suðurnesjum
Uppbygging í heilbrigðis- og umönnunarþjónustu á Suðurnesjum hefur verið umtalsverð síðustu árin og á sama tíma hefur þörfin á aðgengilegri og hagnýtri símenntun í heimabyggð orðið mun skýrari. Unnið er áfram að frekari uppbyggingu og þróun á svæðinu, sem kallar á að heilbrigðisstarfsfólk hafi möguleika í heimabyggð á að viðhalda þekkingu sinni og bæta við hana í takt við breyttar áherslur í starfi. Þetta undirstrikar jafnframt mikilvægi þess að aðgengi að símenntun sé til staðar á svæðinu.
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) hefur brugðist við þessari þróun með markvissri símenntun fyrir sjúkraliða og annað heilbrigðisstarfsfólk. Áhersla hefur verið lögð á að bjóða hagnýta fræðslu í heimabyggð og þróa námsframboð í takt við þarfir og óskir fagfólks.
Til að tryggja að námsframboð taki mið af raunverulegum þörfum fagfólks sendi MSS út könnun í lok árs 2025 til sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga og annars fagfólks í heilbrigðisgeiranum á svæðinu. Niðurstöðurnar hafa nýst vel við skipulagningu námskeiða. Á vorönn 2026 voru haldin námskeiðin Sár og sárameðferð, Vímuefnaröskun eldri borgara og Bólgur og þarma-flóran. Þann 28. apríl síðastliðinn fór fram síðasta námskeið vorannar, sýnatökunámskeið, sem var mjög vel sótt og komust færri að en vildu. Á skömmum tíma hefur MSS komið fjórum af þeim fimm námskeiðum sem mest var kallað eftir í framkvæmd. Námskeiðin hafa almennt fengið afar góðar viðtökur og þátttakan sýnir skýrt þörfina fyrir aðgengilega símenntun í heimabyggð, ekki síst þegar um er að ræða verkleg og hagnýt námskeið.
Framhaldið lítur vel út en nú þegar hefur verið opnað fyrir skráningu á nokkur námskeið á haustönn og námskeiðið Bráðahjálp fullorðinna fyrir sjúkraliða, sem flestir kölluðu eftir í könnuninni, verður opnað til skráningar innan skamms.
Kjarni málsins er sá að þegar símenntun er byggð upp í nánu sambandi við þarfir fagfólks á svæðinu verður námsframboðið bæði markvissara og aðgengilegra. Með þessu framtaki hefur MSS, í samstarfi við heilbrigðisþjónustuaðila á Suðurnesjum, stuðlað að auknu aðgengi að símenntun í heimabyggð og tryggt að námsframboðið þróist og aukist áfram í takt við þarfir fagfólks á Suðurnesjum.
Hólmfríður Karlsdóttir,
deildarstjóri hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
Jóhanna María Kristinsdóttir,
verkefnastjóri hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum









