HSS
HSS

Aðsent

Mörg börn pissa undir
Fimmtudagur 11. janúar 2007 kl. 13:23

Mörg börn pissa undir

Þvagmissir í svefni er algengt vandamál meðal barna alls staðar í heiminum og eru íslensk börn þar engin undantekning.  Mun fleiri strákar en stelpur pissa undir, en nærri lætur að um 30% barna undir sjö ára aldri og allt að 10% unglinga séu að glíma við vandamálið.  Það er skelfilega hátt hlutfall.
Pissi börn undir kemur yfirleitt að þeim tímapunkti að þau vaxa upp úr vandamálinu með tíð og tíma og mikilli þolinmæði.  Foreldrum skal þó bent á að leita læknis til að útiloka veikindi, sjúkdóma eða aðrar hugsanlegar líkamlegar ástæður.  Í fyrstu atrennu má hugsa sér læknispróf og rannsókn á þvagprufu barnsins.
Börn ná meiri stjórn á þvagblöðrunni eftir því sem þroskinn færist yfir, en við fimm ára aldur eru langflest börn hætt að missa þvag í svefni.  Fram að þeim tíma er vandamálið síður en svo óalgengt, jafnvel þó það sé pirrandi og reyni mjög á þolgæði foreldranna.  Alls ekki er nauðsynlegt að grípa til sérstakra ráðstafana eða láta börn á meðferð út af þessu hvimleiða vandamáli fyrir fimm ára aldur.  Það gæti þvert á móti haft skaðleg áhrif á ungviðið.
Það er ekki á allra vitorði að þvagmissir í svefni getur legið í fjölskyldum því rannsóknir hafa sýnt að ef annað foreldrið hefur átt við vandamálið að glíma í æsku, eru 40% líkur á að barn þess muni eiga í sömu glímu við þessi næturslys.  Kannist báðir foreldrarnir við vandamálið frá eigin æskuárum, aukast líkurnar á að afkvæmi þeirra pissi undir upp í 70%.
Þegar “slysin” gerast, er ekki hægt að rekja ástæðurnar til of mikils drykkjarþambs fyrir háttinn.  Þaðan af síður er hægt að skella skuldinni á geðveiklu eða hegðunarvanda.  Þetta gerist heldur ekki vegna þess að barnið er of latt til að fara úr rúminu til að fara á klósettið.  Börnin missa heldur ekki þvag í rúmið sitt til þess eins að skaprauna foreldrunum.
Sumra orsaka má hinsvegar leita í:
- Erfðum.
- Erfiðleikum við að vakna.
- Hægvirku miðtaugakerfi, sem veldur því að barnið nær ekki að tæma þvagblöðruna á kvöldin.
- Hormónavanda, sem veldur því að magn þvags frá nýrum minnkar.
- Þvagrásarsýkingum.
- Afbrigðileika í mænu.
- Erfiðleika við að halda þvagi í langan tíma vegna smæðar þvagblöðrunar.

Langflest börn vaxa upp úr vandamálinu án þess að grípa þurfi til sérstakra ráðstafana eða meðferða.  Á hinn bóginn er það skylda foreldra að hjálpa börnum sínum við að yfirstíga vandamálið og halda sér þurrum í svefni.  Sé vandamálið viðvarandi má grípa til tvenns konar meðferðarúrræða, annars vegar til hegðunarmeðferðar og hinsvegar til lyfjameðferðar.  Læknirinn skrifar út lyfin á meðan hegðunarmeðferðinni er ætlað að kenna barninu að bleyta ekki rúmið sitt.  Breyttu mynstri má m.a. ná fram með því að leiða barnið á klósettið klukkan eitt á hverri nóttu.  Í öðru lagi má æfa barnið í að halda þvagi í blöðrunni.  Í þriðja lagi mætti hugsa sér að láta barnið sjálft skipta á rúminu ef það pissar undir.  Og loks eru verðlaun alltaf vel þegin fyrir “þurrar” nætur.

Dáleiðsla, matarkúrar og sálfræðimeðferð eru meðferðarform, sem ekki hafa mikið verið notuð á börn, sem pissa undir, þó þetta geti gefið góða raun í einstaka tilfellum.  Matur, sem talinn er auka á vandamálið, eru mjólkurafurðir, súkkulaði, súrir ávextir og djús.

Þvagmissir getur auðveldlega leitt til hegðunarvandamála hjá börnum, sem pissa undir, vegna sektarkenndar og skömmustutilfinningar.  Það er hinsvegar mikilvægt að láta barnið ekki líða fyrir eitthvað, sem það hefur ekki stjórn á.  Nauðsynlegt er að barnið sé fullvissað um að þvaglátið er ekki því að kenna.  Refsing fyrir að pissa undir skilar engum árangri.  Þess í stað er uppörvun og jákvæður tjáningamáti við barnið um vandamálið talið árangursríkara.  Það gæti líka verið gott að fræða barnið sitt um að engin veit nákvæmlega um ástæður þess af hverju börn pissa undir þó erfðafræðilegar vísbendingar séu hvað sterkastar.

Birgitta Jónsdóttir Klasen.
Höfundur er náttúrulæknir og rithöfundur.
Bílakjarninn
Bílakjarninn