Minnihlutastjórnin hefur unnið mikið verk
Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur þrátt fyrir erfiðar aðstæður komið fjölmörgum veigamiklum málum í verk á þeim stutta tíma sem hún hefur haft til verka. Af fjölmörgu er að taka og skal hér fátt eitt haft eftir.
Jöfnuður í verki
Eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar var að afnema sérréttindi ráðherra og alþingismanna í eftirlauna- og lífeyrismálum sem á sínum tíma voru sett með umdeildum eftirlaunalögum. Þá hafa ráðherrar birt hagsmunatengsl sín og nú er unnið að siðareglum fyrir stjórnarráðið. Ferðakostnaði og dagpeningum hefur verið haldið í lágmarki. Ójöfnuður í landinu hefur farið vaxandi á undanförnum árum en í aðgerðum sínum leggur ríkisstjórnin áherslu á jöfnuð.
Fjölmargar aðgerðir í þágu heimila og atvinnureksturs hafa þegar litið dagsins ljós og margar aðrar eru í burðarliðnum. Má hér nefna útborgun séreignarsparnaðar, stofnun velferðarvaktar, niðurfellingu innritunargjalda á sjúkrahús, frystingu myntkörfulána, hækkun vaxtabóta, breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar, lækkun dráttarvaxta, fjórðungshækkun vaxtabóta, greiðsluaðlögun fyrir skuldara sem ekki geta staðið í skilum og breytingar á gjaldþrotaskiptalögum í þágu þeirra. Fyrirtækjum hefur verið gert kleift að dreifa gjalddögum aðflutnings- og vörugjalda, uppgjörstímabilum virðisaukaskatts breytt, útlánaflokkum Íbúðalánasjóðs fjölgað til að auðvelda viðhaldsverkefni og styrkja byggingariðnað. Stýrivextir hafa verið lækkaðir, niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar auknar, heimildir veittar Bjargráðasjóði til stuðnings bændum og endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna viðhald og endurbóta á húsnæði aukin í 100%.
Efnahagsmál, skattalöggjöf og undanskot
Efnahagsstefnunni hefur verið breytt og skipaðar nýjar yfirstjórnir Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Lagðar hafa verið til breytinga á lögum fjármála- og verbréfaviðskipti til að auka gagnsæi. Til þess að bregðast við vísbendingum um að umtalsverðum fjármunum hafi verið skotið undan skatti og komið í fyrir í fjarlægum skattaskjólum hefur Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, mælt fyrir frumvarpi þar sem skattalöggjöf er færð í horf líkara því sem tíðkast í nágrannalöndum okkar. Til þess að upplýsa um þau undanskot sem þegar hafa átt sér stað hefur embætti sérstaks saksóknara verið styrkt verulega með auknum rannsóknarheimildum, fjármunum og liðsstyrk.
Úrræði alvinnulífs og heimila
Þegar kemur að enduruppbyggingu atvinnulífs á Íslandi telur Vinstrihreyfingin grænt framboð mikilvægt að styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki. Beita skattaívilnunum til að styðja við sprotafyrirtæki vegna rannsóknar- og þróunarstarfa. Að sama skapi styðja við atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með jöfnunaraðgerðum á borð við skattaívilnanir og niðurgreiðslu á raforkuverði vegna mismunar á aðgengi fyrirtækja á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. Kvótann til þjóðarinnar með raunhæfum aðgerðum í kvótamálum. Fullvinnsla fiskafurða í byggðum landsins, aukin sókn smábáta á grunnslóð, í fiskveiðistjórnunarkerfi sem stuðlar að endurnýjun í greininni og uppbyggingu útgerðafyrirtækja ekki síst smárra og meðalstórra.
Hinn 6. mars samþykkti ríkisstjórnin 11 tillögur um aðgerðir í þágu atvinnulífsins. Þá hafa endurgreiðslur úr ríkissjóði til kvikmyndagerðar verið auknar úr 14% í 20%. Fjölmörg önnur mál hafa verið afgreidd af ríkisstjórninni eða eru á lokastigi. Hér má nefna lög um ábyrgðarmenn, breytingar á útlánareglum LÍN, frumvarp um náms- og starfsráðgjafa, frumvörp á sviði jafnréttismála.
Að lokum
Við erfiðar aðstæður og á aðeins liðlega tveim mánuðum hefur ríkisstjórn VG og Samfylkingar tekist að koma í verk málum sem fyrrverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar tókst ekki að koma í verk eftir efnahagshrunið frá 6. október 2008 til janúarloka 2009. Ný ríkisstjórn hefur sýnt í verki að henni er treystandi til að leiða þjóðina farsællega út úr efnahagshruninu með fjölþættum aðgerðum þar sem við erfiðar æðstæður er staðinn vörður um heilbrigðisþjónustu og aðrar grunnstoðir stefnu um jöfnuð og réttlæti.
Atli Gíslason og Bergur Sigurðsson sem skipa 1. og 4. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Suðurkjördæmi.