Bygg
Bygg

Aðsent

Milljón í laugina við Valbjargargjá
Mánudagur 11. júní 2012 kl. 10:22

Milljón í laugina við Valbjargargjá

Ferðamálasamtök Suðurnesja fengu úthlutað 1 milljón króna úr Pokasjóði í ár til að endurhlaða laugina við Reykjanesvita í Valbjargargjá. Þessi laug var hlaðin upp á fyrri hluta síðustu aldar þar sem Grindvíkingum var kennt sund um tíma. Þarna var volgra sem ekki nýtur lengur við og er það ætlun FSS að koma heitu og köldu vatni að lauginni svo hægt verði að bjóða upp á böð í volgu vatni.


Fyrr á árinu fengu Ferðamálasamtökin 1,5 milljón króna úthlutun frá Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða til að setja upp skilti, stika gönguleiðir og til kortagerðar í Hundrað gíga garðinum. Hundrað gíga garðurinn er ysti hluti Reykjanessins þar sem er Valbjargargjá, Valahnjúkur, Reykjanesviti, 100 gíga leiðin, Gunnuhver, Gráalónið, Reykjanesvirkjun, Stóra-Sandvík og Brú milli heimsálfa. Allt eru þetta staðir sem hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn og sóttu um 110 þúsund ferðamenn Hundrað gíga garðinn á síðasta ári.

Kristján Pálsson form. FSS

Bílakjarninn
Bílakjarninn