Mikil þörf á mataraðstoð fyrir páskana
Við hófum starfsemi Fjölskylduhjálpar Íslands á núlli í september 2003. Við afgreiddum 30.000 matargjafir árið 2012. Við greiddum tæpar 22 milljónir í vsk til ríkisins á árunum 2008 til og með 2012.
Fyrir páskahátíðina í ár munum við afgreiða mataraðstoð til 600 fjölskyldna. Við aðstoðum 60 foreldra fermingarbarna við að halda fermingarveislur í ár. Vodafone afhenti okkur fimm Samsung Galaxy síma til að gefa foreldrum sem hafa ekki fjárráð til að kaupa fermingargjafir fyrir börnin sín.
Í ár hófum við að gera vinnustaðasamninga í samvinnu við Vinnumálastofnun og TR við einstaklinga sem hafa verið lengur en þrjú ár án atvinnu en hefðu ella farið á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga.
Þeir sem eru aflögufærir með páskaegg fyrir börn á efnalitlum heimilum er bent á að tekið verður á móti páskaeggjum eftir helgina á mánudag og þriðjudag frá kl. 13 til 18 bæði í Reykjavík að Iðufelli 14 og í Reykjanesbæ að Baldursgötu 14.
Á báðum stöðum er opið alla virka daga frá kl. 13 til 18.
f.h. Fjölskylduhjálp Íslands
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður