„Miðnes“ heim
Ég hef áður nefnt að mér þyki ástæða til að Suðurnesjamenn, einkum Sandgerðingar láti ekki fram hjá sér fara sölu á Brimi hf eða sjávarútvegsfyrirtækjum Eimskips hf án þess að gera alvöru tilraun til að ná í þann hluta sem samsvarar Miðnesi hf. Miðnes var á sínum tíma eitt stærsta fyrirtæki í Keflavík og Sandgerði, var síðar sameinað Haraldi Böðvarssyni hf ogn í kjölfarið voru öll umsvif fyrirtækisins í Sandgerði og á Suðurnesjum lögð niður og störfin flutt til Akraness, þrátt fyrir hátíðleg loforð um annað.
Það er athygli vert, að í máli Brims þótti sjálfsagt fyrir skömmu að ganga til samkomulags við Seyðfirðinga sem litu nákvæmlega sömu augum og Sandgerðingar og Suðurnesjamenn á flutning sem ÚA stóð fyrir á starfsemi frá Seyðisfirði skömmu áður en Brim varð til. Það fyrirtæki var sameinað ÚA endaði sem hluti Brims þegar við stofnun hans. Sandgerðingar hljóta að vænta sömu meðferðar og afstöðu til sinna mála, enda forsendurnar nákvæmlega eins: Fyrirtæki var sameinað Har. Böðvarssyni hf sem síðar varð hluti af Brimi hf. H.Bö. hafði ekki staðið við forsendur sameiningar sem á undan fór, og Miðnes varð hlut af Brimi við stofnun hans. Stjórnendur Brims hf vilja augljóslega sýna fólki og atvinnulífi á Seyðisfirði grandvarleika og gefa þeim kost á að kaupa það sem svarar til hins upprunalega sameinaða fyrirtækis út úr risanum. Þessi niðurstaða hlýtur að verða fordæmi fyrir mál Sandgerðinga, sem er nákvæmlega eins til komið.
Bæjarstjórinn í Sandgerði, Sigurður Valur Ásbjörnsson hefur með fulltingi bæjarfulltrúa unnið að þessu máli. Mér sýnist að fleiri aðilar á Suðurnesjum ættu að standa með í málinu – standa saman. Ef orðið getur af kaupum "Miðness" þá er ekki um að ræða smáviðskipti, heldur stór a.m.k. miðað við meðal-útgerðir á Suðurnesjum. Hér duga því engar smábáta-lausnir, sem því miður eru of oft rökstuddar með því að meiri fyrirhöfn og aukin vinna gefi meiri arð – sem alrangt. Hér má ekki fara í sama farið og Eldey hf fór á sínum tíma, heldur verður að vinna að útgerð, veiðum, meðferð afla og vinnslu með hámarks-gæði og hámarks-verð afurða í huga, og sölu á þeim mörkuðum sem greiða hæstu verð fyrir. Mestu skiptir að fá til stjórnunar menn sem kunna til verka, stjórna úthaldi, veiðum, meðferð afla og vinnslu afurða á þann hátt sem skilar hæstum verðum og mestum arði.
Ég hef áður bent á að ef við hefðum þegar stofnað fjárfestingasjóð Suðurnesja þá hefðum við nú þegar það afl sem gæti stutt við bakið á þessu verkefni frá upphafi, þann mun má sjá á Akureyri og hjá fleirum af þeim sem undirbúa kauptilboð. Ásamt Eignarhaldsfélagi Suðurnesja sem getur komið snemma að málinu, og með tilstuðlan annarra fjárfesta, svo sem lífeyrissjóðum, Sparisjóðnum í Keflavík, öðrum fjárfestum og fjárfestingasjóðum, er hægt að ná saman því fjármagni sem þarf til að ná endum saman um kaup. Þá er starfsemin eftir, þ.e.a.s. að reka fyrirtækið. Þar má ekki stunda rekstur sem ekki ber sig.
Ég vil eindregið hvetja Suðurnesjamenn til samstöðu um það að ná "Miðnesi" aftur til Suðurnesja. Það er keppikefli okkar sem teljumst bera nokkra ábyrgð fyrir samfélaginu á Suðurnesjum að vinna ásamt fjárfestum og fyrirtækjum að fjölgun atvinnutækifæra. Með aukinni útgerð nýtum við Suðurnesjamenn okkur þann kost að búa við bestu fiskimið á grunnslóð við landið, hér kunna menn til verka við útgerð, fiskveiðar, fiskvinnslu og markaðsfærslu sjávarafurða. Það eigum við að nýta okkur. Tökum höndum saman, "Miðnes" heim.
Árni Ragnar Árnason, alþm.