Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Föstudagur 12. september 2003 kl. 09:48

Metnaður og samstaða bæjarbúa á Ljósanótt

Fjórðu Ljósanæturhelginni er nú lokið og geta bæjarbúar enn einu sinni glaðst yfir velheppnaðri hátíð og byrjað að hlakka til þeirrar næstu. Með metnaði og samstöðu hafa íbúar Reykjanesbæjar sett Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð endanlega á kortið sem eina stærstu og glæsilegustu bæjarhátíð landsins.

Fjöldi fólks kom að hátíðinni að þessu sinni og má með sanni segja að þeir skipti hundruðum ef allt er til talið. Menningar- og skemmtidagskrá helgarinnar var viðameiri en áður og er það samdóma álit manna að hún hafi heppnast í alla staði vel. Fullt hús eða um 900 manns voru í Íþróttahúsinu við Sunnubraut á setningardaginn þegar okkar menn mættu Dönum í hnefaleikakeppni og var umgjörð keppninnar aðstandendum til mikillar fyrirmyndar. Þá var uppselt í Stapa á föstudagskvöldið þegar keppnin um Ljósalagið 2003 fór fram en það var lagið Ljóssins englar eftir Magnús Kjartansson í flutningi Rut Reginalds sem stóð á endanum uppi sem sigurvegari enda um mjög gott lag að ræða. Ekki er hægt að ganga frá þessu kvöldi án þess að þakka góðan undirbúning, frábæran mat og síðast en ekki síst frábær skemmtiatriði sem öll voru í flutningi heimamanna.

Gott veður, mannfjöldi og skemmtun einkenndi laugardaginn allan þar sem verslanir, söfn og sýningar voru stútfullar af fólki. Eftir hressilegan landsleik um kvöldið tók fólk aftur stefnuna á útisvæðið við Hafnargötuna þrátt fyrir að vindur og regndropar færu að gera vart við sig. Kvölddagskráin hófst síðan með bryggjusöng undir stjórn Bróa og Jóns Björns og síðan lék Léttsveit Tónlistarskólans skemmtileg lög. Það kom síðan í hlut Bæjarstjórnarbandsins og Hljóma að gleðja mannfjöldann með frábærum tilþrifum fram að stórglæsilegri flugeldasýningu í boði Sparisjóðsins í Keflavík. Eftir útidagskrá tóku skemmtistaðir bæjarins við og var Hafnargatan iðandi af lífi langt fram á rauða nótt.

Dagskrá sunnudagsins tók óvænta stefnu þegar fréttist af andláti okkar mikils metna skólastjóra, Vilhjálms Ketilssonar. Vill Ljósanæturnefnd nota tækifærið og senda vinum og aðstandendum öllum okkar dýpstu samúðarkveðjur.

Ljósanæturnefnd kom saman í lok helgarinnar og yfirfór alla þætti sem tengdust hátíðinni.  Viljum við í því sambandi sérstaklega þakka jákvæðar ábendingar frá gestum Ljósanætur og fyrirmyndar samstarfi lögreglu, björgunarsveitar og útideildar Reykjanesbæjar. Síðast en ekki síst ber að þakka þeim fjölmörgu einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum sem tóku virkan þátt í hátíðinni og sköpuðu þannig þá samstöðu sem eftir var tekið um allt land. Það verður áfram okkar markmið að gera enn betur að ári með ykkar aðstoð.

 

Fyrir hönd Ljósanæturnefndar,

Steinþór Jónsson, formaður
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024