Metnaðarfull menntasókn og átak í atvinnumálum
Það þarf að ráðast í kraftmikið og fjölbreytilegt átak í atvinnumálum Suðurkjördæmis þar sem kostir svæðisins eru nýttir til hins ýtrasta. Fjölda margt má nefna hvað varðar sérstöðu og kosti til öflugrar atvinnuuppbyggingar. Það á með markvissum hætti að standa að uppbyggingu nýrra atvinnutækifæra, t.d. með byggingu fleiri skóladeilda og uppbyggingu iðnaðar.Uppbygging iðnaðar
Nálægð við höfuðborgarsvæðið, fjöldi vinsælla ferðamannastaða og orkuöflun landsins, sem á sér að miklu leyti stað í kjördæminu, gefa færi á umfangsmikilli atvinnuuppbyggingu. Sem dæmi má nefna fer u.þ.b. 90% af orkuframleiðslu landsins fram á Suðurlandi en mjög lítil iðnaðarframleiðsla á sér hinsvegar stað stað á Suðursvæðinu.
Þessu verður að breyta. Margir staðir á Suðurnesjum og Þorlákshöfn, svo dæmi séu tekin, eru tilvaldir til uppbyggingu öflugs iðnaðar. Þá er hægt að fullyrða að þau gullnu tækifæri sem ferðamannastraumurinn á svæðið skapar eru fjarri því að vera að fullu nýtt.
Annað tækifæri til náms
Með stórbættri menntun er brautin rudd fyrir blómlegt atvinnulíf og byggðastefnu. Jafn aðgangur og virk símenntun skipta þar höfuðmáli. Fjölbrautaskólarnir í kjördæminu hleyptu nýju lífi inn á svæðið. Það á að beita öllu afli við að fá fleiri skóladeildir á háskólastigi í kjördæmið og efla hlutverk Fræðslunets og fjarnáms.
Samfylkingin hefur kynnt metnaðarfulla hugmynd um annað tækifæri til náms. Ef vel er að verki staðið er um fágætt framfaramál að ræða þar sem dyrnar eru opnaðar fyrir þá sem hafa horfið frá námi eða vilja bæta við menntun sína. Annað tækifæri í menntun á að byggjast á aðgengilegu grunnnámi, framhaldsnámi, starfsnámi eða námstilboðum fyrir þá sem vilja bæta við sína fyrri menntun eða hasla sér völl á sviðum. Þannig jöfnum við tækifærin og búum til öfluga veitu inn í atvinnulífið.
Björgvin G. Sigurðsson, þátttakandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.