Menntamálaráðherra setti Stjórnmálaskólann
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, setti Stjórnmálaskóla Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ, í síðustu viku en Stjórnmálaskólinn í Reykjanesbæ er starfræktur í samvinnu við Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins.
Að setningu lokinni ræddi Þorgerður Katrín um menntamál og svaraði spurningum viðstaddra en Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, tók einnig til máls og fjallaði aðallega um Sjálfstæðisstefnuna og starfsemi Sjálfstæðisflokksins.