Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Menningar- og sögutengd ganga um  Þórkötlustaðahverfið
Sunnudagur 22. apríl 2007 kl. 17:28

Menningar- og sögutengd ganga um Þórkötlustaðahverfið

Menningar- og sögutengd ganga í boði Grindavíkurbæjar og Saltfiskssetursins verður laugardaginn 28. apríl. og hefst kl. 11:00. Gangan hefst við nýja söguskiltið af Þórkötlustaðahverfi, sögusviði fjárbúskapar og sjómennsku.  Skiltið er við fjárréttina.

Genginn verður hringur um  hverfið m.a. að þeim stað þar sem að þjóðsagan segir að dys Þórkötlu sé. Komið verður við á Þórkötlustöðum III þar sem álagasteinninn Herodes er. Gengið verður að Buðlungavör, Klöpp og gengið til baka meðfram strandlengjunni að Hraunkoti eftir gömlu götunum og gömlu réttinni að upphafsstað göngu.Ýmislegt verður skoðað sem  fyrir augu ber á leiðinni. Leiðsögumenn sjá um fræðsluna og leiða gönguna. Reynt verður að gera gönguna bæði skemmtilega og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Uppákomur s.s.  kindum gefið, hákarlasmakk o.fl.. Gangan endar við Auðsholt en þar verður væntanlega kaffisala í tilefni dagsins.

Gangan tekur um einn og hálfan  klukkutíma með fræðslustoppum. Fólk búi sig eftir veðri.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024