Hviða
Hviða

Aðsent

Með ljós í hjarta á Ljósanótt
Föstudagur 4. september 2026 kl. 08:44

Með ljós í hjarta á Ljósanótt

Kæru íbúar Reykjanesbæjar og gestir.

Ljósanótt í Reykjanesbæ árið 2026 fer fram dagana 3.–6. september nk.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Við hvetjum alla til að skemmta sér fallega og fara varlega. Mikilvægt er að sýna hvert öðru virðingu og umhyggju – þannig stuðlum við að því að allir geti átt góða og örugga stund saman.

Munið að ef eitthvað kemur upp sem ekki á að gerast er alltaf hægt að hringja í 112.

Þar er aðstoð ávallt innan seilingar.

Mikill viðbúnaður verður á hátíðinni, meðal annars hjá lögreglu, Flotanum – flakkandi félagsmiðstöð – og barnavernd Reykjanesbæjar.

Við leggjum öll okkar af mörkum til að skapa öruggt og hlýlegt samfélag.

Verum með ljós í hjarta – og látum gleðina, öryggið og virðinguna leiða okkur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn