Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Matti Ósvald með fyrirlestur í Íþróttaakademíunni
Þriðjudagur 6. mars 2007 kl. 10:09

Matti Ósvald með fyrirlestur í Íþróttaakademíunni

Í kvöld, klukkan 20.00 býður Íþróttaakademían uppá ókeypis fyrirlestur með Matta Osvald um markmið og mátt hugans.

Matti hefur í um 20 ár starfað sem heildrænn heilsufræðingur og aðstoðað fjöldann allan af fólki sem komið hefur til hans meðferð. Matti segir fjölda fólks leita til sín í nudd vegna verkja í líkamanum. Rótina að verkjunum megi hins vegar rekja beint eða óbeint til rangs hugarfars.
 
Fólk er gjarnan að láta gamla drauga úr fortíðinni hafa áhrif á daglega líðan eða er almennt neikvætt og stressað. Nuddið linir kannski verkina en vandamálið og orsökin verður ennþá til staðar og því nauðsynlegt að hugarfarsbreyting eigi sér stað.

Á fyrirlestrinum mun Matti segja sögur af einstaklingum sem leitað hafa til sín og það er nokkuð víst að flestir munu geta sett sig í spor þeirra.

Ýmsum spurningum verður velt upp og svarað eins og:

. Hafa markmið áhrif á sjálfstraust og vellíðan?

. Hvað er að vera jákvæður og neikvæður?

. Hvernig við notum eigið hugarfar til að komast yfir hindranir og sigrast á mótlæti.

. Hverjar eru algengustu hindranirnar sem við eigum við?

. Hvar fær innri ótti mátt sinn?

. Er fortíðin að hindra/trufla þig?

. Af hverju er svona erfitt að hætta að borða súkkulaði (og kannski nammi)? Er það hugarfar eða líffræðilegt?


Auk þess verður rætt um ýmislegt bæði skemmtilegt og nýtanlegt.

Skráning á fyrirlesturinn á [email protected] og í síma 420-5500
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024