Mataræði barna og unglinga á grunnskólaaldri til umræðu í kvöld
Þá er komið að vorfyrirlestri FFGÍR (Foreldrafélög og foreldraráð grunnskólanna í Reykjanesbæ) en hann verður haldinn í Myllubakkaskóla í kvöld, þriðjudaginn 13.maí 2003, kl: 20.00 Þar mun Borghildur Sigurbergsdóttir næringarráðgjafi hjá Heilsugæslustöð Suðurnesja ræða um næringarþarfir barna og unglinga og hvað hefur áhrif á mataræði þeirra. Einnig um það sem úrskeiðis fer og þau vandamál sem tengjast mat og næringu þessa hóps s.s. offitu, átraskanir, sykurneyslu, matvendni og einhæft fæðuval.Borghildur er í hlutastarfi hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hún sinnir næringarráðgjöf sem var byggð upp í tenglsum við þjónustu fyrir sykursjúka, en hefur nú verið víkkuð út og nú er staða næringarráðgjafa til að sinna næringarráðgjöf fyrir aðra hópa skólstæðinga HSS, bæði á heilsugæslu og sjúkrahússviði. sem mjög merkilegt og framsýnt af HSS,þar sem þetta er í fyrsta sinn á Íslandi sem næringarráðgjafi er ráðinn á heilsugæslustöð, en þörfin er til staðar víðar.
Aðgangseyrir er enginn og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta.
Aðgangseyrir er enginn og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta.