Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Aðsent

Markvissar áætlanir í skólastarfi skila árangri
Sunnudagur 30. desember 2012 kl. 16:31

Markvissar áætlanir í skólastarfi skila árangri

Árangur nemenda í Grunnskóla Sandgerðis í samræmdum prófum nú í haust var með miklum ágætum og sá besti sem náðst hefur sl. átta ár. Þessi þróun gefur góðar vísbendingar og sýnir að árangur nemenda skólans í íslensku og stærðfræði stefnir örugglega upp á við.

Nemendur í 10. bekk bættu  sig að meðaltali um 30% í stærðfræði og 38% í íslensku frá samræmdum prófum þeirra í 7. bekk árið 2009. Niðurstöður samræmdra prófa nemenda í 4. bekk eru þær bestu sem náðst hafa í fjórða bekk í Grunnskólanum í Sandgerði.

Hvað skýrir aukinn árangur?

Auk efnilegs hóps nemenda hefur Grunnskóli Sandgerðis á að skipa metnaðarfullu og dugmiklu starfsliði. Í skólanum hefur ríkt stöðugleiki í starfsmannahaldi og allir kennarar skólans eru með tilskilin próf til kennslu á grunnskólastigi. Faglegir kennsluhættir og metnaður eru einkennandi í skólastarfinu og markvisst eru gerðar áætlanir um hvernig gera má gott betra.   Um  nokkurra ára skeið hefur verið við lýði uppeldisstefnan „uppeldi til ábyrgðar – uppbygging sjálfsaga“. Stefnan byggir á aðferðum til að kenna nemendum og leiðbeina  þeim við að  tileinka sér sjálfsaga og sjálfsstjórn, og læra að þekkja eigin tilfinningar og þarfir. Rannsóknir hafa farið fram vestan hafs á uppeldisstefnunni og þeim aðferðum sem hún byggir á. Sýnt hefur verið fram á að í skólum sem styðjast við stefnuna hafi árangur í námi aukist, agi aukist, mæting batnað og almennt mælist meiri ánægja meðal nemenda, foreldra, kennara og starfsfólks skólanna.   Við teljum líka að sjá megi árangur stefnunnar þó innleiðing hennar hafi ekki verið rannsökuð vísindalega og teljum að árangurinn endurspeglist í niðurstöðum í samræmdum prófum, í skoðanakönnunum meðal nemenda, kennara og foreldra, og einnig í niðurstöðum rannsókna sem framkvæmdar hafa verið af Rannsóknum og greiningu á högum og líðan grunnskólanemenda. Í könnunum Rannsókna og greiningu kemur fram að almennt líður nemendur vel í skólanum, þeir eru sáttir við skólastarfið og allir 10. bekkingar stefna á framhaldsnám að loknum grunnskóla og all margir stefna að námi í háskóla.

Frá haustinu 2008 hefur skólinn fylgt ákveðinni lestrarstefnu sem hefur það að markmiði að efla lestrarfærni nemenda, faglega þekkingu starfsmanna á kennsluaðferðum í lestri, samræma vinnubrögð í lestri og auka samstarf við heimilin. Lestrarstefnan var endurskoðuð skólaárið 2011-2012 og hefur fest sig í sessi. Sett hefur verið á laggirnar lestrarteymi sem m.a. hefur það hlutverk að fylgja stefnunni eftir og hefur það sinnt hlutverki sínu af mikilli kostgæfni. Þegar litið er á framfarir nemenda 10.  bekkjar nú er eðlilegt að draga þá ályktun  að lestrarstefnan hafi skilað skýrum árangri og sanni að lestur og lestrarkennsla sé undirstaða alls náms. Almenn lestrargeta nemendanna er með því besta sem gerist og framfarir hafa verið mjög miklar.

Kennsluhættir, markmiðasetning fyrir skólann og markmiðssetning nemendanna sjálfra skipta sköpum ef árangur á að nást. Ljóst er að sú vinna og áhersla sem lögð hefur verið í endurskoðun kennsluhátta, framkvæmd kennslunnar, setningu markmiða og undirbúning nemenda undanfarin ár hefur skilað árangri og ber vitni um framsækni og metnað.  

Nú er unnið að gerð skólastefnu fyrir Sandgerðisbæ. Sú vinna fer m.a. fram í samvinnu við Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar og þá skóla sem njóta þjónustu skrifstofunnar. Öll skólastigin koma að þeirri vinnu, leikskólinn, grunnskólinn og tónlistarskólinn. Samkvæmt samningi sem gerður var við skólaskrifstofuna á síðasta ári hefur verið lögð aukin áhersla á samstarf skólanna á svæðinu. Í því samstarfi er haft að  leiðarjósi að stefna markvisst að því að bæta námsárangur nemenda í grunnskólunum. Lögð er sérstök áhersla á lestrar- og stærðfræðikennslu frá skólabyrjun, þ.e. frá leikskóla og í gegnum allan grunnskólann. Árangur starfsins er metinn með stöðluðum prófum, lestrarprófum, samræmdum prófum, og unnið út frá niðurstöðum þeirra. Jafnframt miðar samvinnan að því að efla þátt  foreldra í námi barna sinna.

Það er einstaklega gleðilegt að fylgjast með góðu starfi skólans, finna og sjá þann kraft og metnað sem þar ríkir.
 
Sigrún Árnadóttir,
bæjarstjóri í Sandgerði

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024