Markaðsstemmning í Safnaðarheimilinu í Innri-Njarðvík

Í tilefni af menningadögum í kirkjum Njarðvíkurprestakalls sem að nú standa yfir, verður markaður eldri borgara í Safnaðarheimilinu í Innri-Njarðvík laugardaginn 25.október kl.15-18.
Fyrirkomulagið verður þannig að ekki þarf að panta bás fyrirfram heldur opnar húsið kl. 13 og hverjum og einum gefst tækifæri á að selja vörur sínar t.d. handaverk, matvæli eða hvers konar framleiðslu og listaverk.
Þarna verður nokkurs konar Kolaportsstemmning.
Kaffiveitingar verða seldar á vægu verði eða kr. 300 á meðan markaðurinn stendur yfir.
Upplagt tækifæri til að kaupa og selja jólagjafir og ódýran heimalagaðan íslenska mat.
Markaður eldri borgara- laugardaginn 25.október kl.15 í safnaðarheimilinu í Innri-Njarðvík.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				