Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Margra ára halli á rekstri Reykjanesbæjar skapar óvissu um búsetuskilyrði
Föstudagur 19. nóvember 2010 kl. 15:05

Margra ára halli á rekstri Reykjanesbæjar skapar óvissu um búsetuskilyrði

Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjanesbæ haldinn 18. nóvember 2010, lýsir yfir miklum áhyggjum af fjárhagsstöðu bæjarsjóðs Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar. Margra ára halli á rekstri Reykjanesbæjar skapar óvissu um búsetuskilyrði íbúa bæjarfélagsins.

Aðvaranir Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ fyrir síðust kosningar reyndust á rökum reistar, en fengu þó ekki nægilegan hljómgrunn. Félagið krefst þess að núverandi meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar horfist í augu við staðreyndir, viðurkenni hver staða bæjarsjóðs er og grípi til nauðsynlegra aðgerða til að afstýra greiðsluþroti.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Nóg er komið af útúrsnúningum og fullyrðingum sem ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum. Hagur bæjarfélagsins á að ráða ferðinni, ekki pólitískir hagsmunir einstakra manna.

Stjórn fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjanesbæ.