Langbest Sumardagurinn fyrsti
Langbest Sumardagurinn fyrsti

Aðsent

Málefni eldri borgara skipta máli
Miðvikudagur 22. apríl 2026 kl. 14:54

Málefni eldri borgara skipta máli

A-listinn er nýtt afl í Sveitarfélaginu Vogum sem leggur áherslu á samfélag þar sem allir íbúar fá notið sín – á öllum aldri. Málefni eldri borgara eru þar engin undantekning, enda snerta þau okkur öll fyrr eða síðar.

Í Vogum er öflugt og mikilvægt félagsstarf fyrir eldri borgara í Álfagerði. Þar eru um 50 virkir þátttakendur og um 350 skráðir eldri borgarar eru búsettir í Vogum. Það starf skiptir miklu máli og stuðlar að félagslegri þátttöku, samveru og auknum lífsgæðum. Við hjá A-listanum höfum þó áhyggjur af þeim hópi sem nýtir sér ekki þessa þjónustu og glímir mögulega við einangrun eða einveru.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Einvera eldri borgara er vaxandi samfélagslegt áhyggjuefni og getur haft alvarleg áhrif á andlega heilsu, líðan og almenna velferð fólks. Þess vegna verðum við að spyrja okkur hvernig sveitarfélagið getur betur náð til þeirra sem ekki sækja félagsstarf eða kjósa að taka ekki þátt í hefðbundnu starfi. Mikilvægt er að bera virðingu fyrir ólíkum þörfum fólks og finna fjölbreyttar leiðir til að mæta þeim.

Við þurfum jafnframt að horfa til framtíðar. Samfélagið okkar er að breytast og fjölbreytileikinn eykst. Sú kynslóð sem í dag er virk í samfélaginu, þar á meðal íbúar af erlendum uppruna, mun á sínum tíma einnig þurfa á góðri þjónustu við eldri borgara að halda. Því þarf að móta skýra og framsýna stefnu um málefni eldri borgara núna strax.

Sveitarfélagið Vogar er eitt af fáum sveitarfélögum landsins sem ekki hefur sett á laggirnar öldungaráð, þrátt fyrir ákvæði laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum. Öldungaráði er ætlað að vera formlegur samráðsvettvangur um þjónustu við eldri borgara og þróun málaflokksins innan sveitarfélagsins.

A-listinn mun beita sér fyrir því að slíkt ráð verði stofnað strax í haust. Við teljum mikilvægt að ráðið verði skipað fulltrúum sveitarfélagsins, Félags eldri borgara og heilsugæslunnar þannig að ólík sjónarmið komi að borðinu og raunverulegt samtal eigi sér stað.

Við skuldum eldri borgurum okkar virðingu, öryggi og góð lífsgæði. Það er verkefni okkar allra að tryggja að enginn verði skilinn út undan.

Með A-listanum fá málefni eldri borgara þann sess sem þau eiga skilið.

Ásgeir Ragnar Ásgeirsson,
skipar 5. sæti A-listans í Sveitarfélaginu Vogum, formaður félags eldri borgara í Vogum.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir