Magnús Stefánsson áfram bæjarstjóri
– með D-lista sjálfstæðismanna og óháðra
Að kjósa góða bæjarstjórn til að fara með málefni bæjarins er mikilvægt og grunnurinn að góðri stjórnsýslu. Það er ekki síður mikilvægt að henni fylgi góður bæjarstjóri sem vinnur í takt við bæjarstjórnina.
Magnús Stefánsson núverandi bæjarstjóri gefur kost á áframhaldandi störfum sem bæjarstjóri í samstarfi við fulltrúa sjálfstæðismanna og óháðra í bæjarstjórn. Hann mun flytja búferlum ásamt konu sinni í Garðinn nái sjálfstæðismenn og óháðir meirihluta í komandi kosningum. Þannig mun hann verða hluti af samfélaginu sem er gríðarlega mikilvægt fyrir hann sjálfan og Garðbúa.
Það er mjög jákvæð og góð traustsyfirlýsing sem felst í þessu að hálfu Magnúsar gagnvart D-lista sjálfstæðismanna og óháðra. Magnús treystir sér til að vinna náið með hæfu fólki framboðsins.
Magnús er kominn vel inn í málefni bæjarins og hefur reksturinn tekið viðsnúning, ekki síst vegna færni hans á því sviði. Magnús fær góð meðmæli hvert sem leitað er og er óumdeildur. Það er styrkur fyrir bæjarfélagið í heild sinni.
Með góðri kveðju frá
Sjálfstæðismönnum og óháðum í Garði