Aðsent

Mælirinn fullur með ákvörðunum kjararáðs og kjaradóms
Nesvellir er íbúða- og þjónustusvæði fyrir eldri borgara í Reykjanesbæ.
Mánudagur 3. júlí 2017 kl. 10:51

Mælirinn fullur með ákvörðunum kjararáðs og kjaradóms

Með ákvörðun kjararáðs og kjaradóms á síðustu mánuðum um verulegar hækkanir til æðstu embættismanna og stjórnmálamanna hefur tónninn verið sleginn fyrir aðra hópa þjóðfélagsins. Það er ekki nóg með að launahækkanir séu miklar, heldur eru þær afturvirkar í allt að 19 mánuðum. Afturvirkar greiðslur nema hundruðum þúsunda og milljónum, til viðbótar við launahækkanirnar. Stjórnmálamenn horfa aðgerðarlausir á. Með þessum ákvörðunum er verið að mismuna fólki. Við slíkt verður ekki unað.

Landsamband eldri borgara bendir á að leiðréttingar og afturvirkni eru orð, sem stjórnvöld hafa gjörsamlega hafnað þegar eldri borgarar eiga í hlut, þrátt fyrir loforð um að allar skerðingar frá 2009 yrðu leiðréttar. Frá 2009 hafa eldri borgarar beðið eftir leiðréttingu vegna sinna kjaraskerðinga sem námu um 17 milljörðum króna.

Landsamband eldri borgara mótmælir því harðlega að félögum okkar sé refsað, vinni þeir sér inn tekjur umfram 25 þúsund krónum á mánuði. Eftir það eru aðeins 27% af tekjunum sem fara í veski þeirra. Landsambandið telur það eignaupptöku að refsa félögum fyrir það að hafa lagt hluta launa sinna í lífeyrissjóð. Greiðslur frá Tryggingastofnun eru skertar vegna greiðsla úr lífeyrissjóðum.

Landssamband eldri borgara telur að nú sé mælirinn fullur. Það sé ekki hægt að sætta sig við það óréttlæti sem viðgengst í þjóðfélaginu og mun sambandið taka upp harða baráttu til að stjórnvöld hlusti á kröfur þeirra sem eldri eru í samfélaginu.

Landssamband eldri borgara

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024