Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Má bjóða þér nýja ríkisstjórn?
Sunnudagur 4. febrúar 2007 kl. 11:45

Má bjóða þér nýja ríkisstjórn?

Á fundum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, á Selfossi, í Reykjanesbæ og í Vestmannaeyjum á síðustu dögum hefur verið hlustað eftir sjónarmiðum fundarmanna. Eftir að hafa setið þessa þrjá fundi er það alveg ljóst í mínum huga að þrjú mál umfram önnur eru mjög ofarlega í huga fólks í kjördæminu. Fólki finnst komin tími til að tekið sé til hendinni í málefnum eldri borgara sem og samgöngumálum. Bæði þessi mál kalla á þjóðarsátt um þjóðarátak.
Þriðja málið hef ég kallað dýra Ísland. Undir það falla verðlagsmál ýmis konar; matvælaverð, lánakjör, bensínverð, lyfjaverð, kostnaður við tryggingar og í raun öll þau atriði sem gera Ísland að svo mikið dýrari valkosti til búsetu en öll önnur lönd sem við berum okkur saman við.

Stjórnin fallin

Skoðanakannanir síðustu vikna hafa ítrekað sýnt að núverandi ríkisstjórn er fallinn. Það mun koma ný ríkisstjórn á næsta kjörtímabili og það eru yfirgnæfandi líkur á því að Samfylkingin verði þar í burðarhlutverki. Þetta eru þau þrjú mál sem Samfylkingin mun því leggja megináherslu á í ríkisstjórn á næsta kjörtímabili. Verðlagsmál, málefni eldri borgara og samgöngur. Núverandi stjórnarflokkar hafa haft 12 ár til þess að láta til sín taka i þessum málaflokkum en meira hefur verið sagt en gert. Fyrirhuguð lækkun matvælaverðs sem taka á gildi einum mánuði fyrir kosningar er hlægilegur vitnisburður um raunverulegan vilja stjórnarflokkanna í þessum efnum. Í Vestmannaeyjum hefur sú lækkun nú þegar verið tekin til baka og er orðin að hækkun með 11% hækkun á farþega- og farmgjöldum sem skilar sér beint út í verðlagið.

Sigurlisti

Nú hafa allir flokkar í suðurkjördæmi lokið niðurröðun á framboðslista sína. Framundan er vonandi málefnaleg kosningabarátta þar sem frambjóðendur kynna sín stefnumál og leyfa svo kjósendum að ráða. Sigurlisti Samfylkingarinnar hefur á síðustu vikum og mánuðum komið til fundar við kjósendur í suðurkjördæmi  og mun gera það áfram á þeim tæpu 100 dögum sem eru til ríkisstjórnarskipta. Framboðslisti okkar mun leggja ríka áherslu á þau þrjú mál sem lágu eins og rauður þráður í gegnum fundi formanns Samfylkingar í kjördæminu og ég nefndi hér að ofan. Í efstu sætum framboðslista okkar býr aukinheldur mikil þekking í málefnum menntakerfis, dómskerfis, umhverfismála, sveitarstjórna og vinnumarkaðs. Þetta er traustur framboðslisti; sannur sigurlisti. Ég hvet þig til þess að taka þátt í því að mynda með okkur nýja ríkisstjórn í vor.

Róbert Marshall skipar 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í suðurkjördæmi
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024