Bygg
Bygg

Aðsent

Lokunartíminn nýttur til endurbóta á fæðingardeildinni
Fimmtudagur 18. maí 2006 kl. 08:21

Lokunartíminn nýttur til endurbóta á fæðingardeildinni

Svar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja við bréfi Sigrúnar Kærnested Óladóttur í Vikurfréttum og Morgunblaðinu.

Ágæta Sigrún!

Stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) fagna þeim áhuga sem íbúar sýna starfsemi stofnunarinnar. Að undanförnu hefur mikil uppbygging á starfsemi HSS átt sér stað. Þar ber helst að nefna vaxandi þjónustu við lyflæknissjúklinga og enduruppbyggingu heilsugæslunnar. Starfsemi heimaþjónustu hefur verið aukin verulega og slysa- og bráðaþjónustan verið efld svo nokkuð sé nefnt.
Alltaf hefur þurft að draga úr starfsemi stofnunarinnar yfir sumartímann, m.a. svo starfsfólk hafi tök á að taka út sín lögbundnu frí. Skurðstofurnar hafa gjarnan verið lokaðar í 4-6 vikur á þessum tíma enda kýs fólk yfirleitt að fresta aðgerðum yfir sumarmánuðina nema þær teljist bráðnauðsynlegar. Þann tíma sem skurðstofan er lokuð taka allir skurðlæknar út sín frí og annað starfsfólk sem á skurðstofu vinnur.
Reynslan sýnir að helmingur þeirra kvenna sem fæða á þessum tíma, fæða í Reykjavík þrátt fyrir að fæðingardeildin sé hér starfandi. Ástæðurnar eru að ekki er hægt að veita þá þjónustu og öryggi sem sem æskilegt væri, m.a. vegna þess að skurðstofur eru lokaðar. Ljósmæður HSS munu áfram sem hingað til veita sængurkonum þjónustu meðan deildin eru lokuð eftir fyrirfram ákveðnu skipulagi. Heimaþjónusta og ungbarnavernd verður starfrækt sem áður.
Sá tími sem sumarlokanir standa yfir verður nú í sumar nýttur til endurbóta á fæðingardeildinni, fæðingaraðstaðan sjálf verður rýmkuð til muna og aðstaða til vatnsfæðinga endurbætt. Fæðingardeildin mun því hafa fengið andlitsbreytingu þegar hún opnar á ný.

Virðingarfyllst,
Sigríður Snæbjörnsdóttir
framkvæmdastjóri
Bílakjarninn
Bílakjarninn