Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Lögreglan: Ljósanótt gekk vel fyrir sig
Sunnudagur 2. september 2007 kl. 11:11

Lögreglan: Ljósanótt gekk vel fyrir sig

Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu vegna Ljósanætur í Reykjanesbæ:

 

Hátíð í miðbænum.

Þegar á heildina er litið þá gekk Ljósanótt 2007 vel fyrir sig.  Mörg þúsund manns skemmtu sér vel í miðbæ Reykjanesbæjar í gærkvöldi þegar hæst stóð um miðnætti.

Nokkur mál komu til kasta lögreglu vegna ölvunar og óspekta í nótt.  Nokkuð var um pústra og slagsmál en engin alvarleg mál komu upp. 

Lögregla, barnaverndarnefnd, foreldrar og útideild Reykjanesbæjar starfræktu athvarf í tengslum við hugsanlega ölvun ungmenna og brot á útivistarreglum.  Nokkur afskipti voru höfð af ungmennum sem síðan voru færð í athvarfið.  Haft var samband við forráðamenn sem var gert að sækja þau.

Umferðartafir.

Miklar umferðartafir urðu á Reykjanesbraut vegna mikils umferðarþunga um og eftir miðnætti í lok hátíðarinnar.  Umferð til Reykjavíkur var mjög hæg en við Grindavíkurveg fór umferð að ganga greiðar fyrir sig. Vegna þessar hægu umferðar myndaðist löng röð bifreiða sem náði inn í Reykjanesbæ og fyrir ofan bæinn áleiðs að Flugstöð Leifs Eiríkssonar. 

Önnur verkefni.

Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis.  Níu fíkniefnamál komu upp og sex minniháttar umferðaróhöpp áttu sér stað í gærkvöldi og nótt

Fjöldi lögreglumanna á vakt.

Rúmlega 50 lögreglumenn voru á vakt í gærkvöldi þegar mest lét.


Virðingarfyllst,
Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn og Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024