Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Lionsklúbbar á Suðurnesjum safna fyrir leiðsöguhundum
Fimmtudagur 31. mars 2022 kl. 16:15

Lionsklúbbar á Suðurnesjum safna fyrir leiðsöguhundum

Lionsklúbbarnir á Suðurnesjum taka þátt í söfnunarátakinu „Rauða fjöðrin“ nú um helgina til að tryggja félagsmönnum Blindrafélagsins framboð af þjálfuðum leiðsöguhundum. Söfnunarátakið er samvinnuverkefni Lionshreyfingarinnar á Íslandi og Blindrafélagsins. 

Leiðsöguhundar eru öflugt hjálpartæki fyrir blint og alvarlega sjónskert fólk og veita þeir notendum mikið frelsi og aukið öryggi. Notandi leiðsöguhunds öðlast frelsi til þess að komast um í umhverfi sínu, innan dyra sem utan. Hundarnir leiða notendur sína fram hjá hindrunum sem í vegi þeirra verða og þeir gæta þess að notandinn fái ekki trjágreinar í andlitið þar sem þær slúta yfir gangstéttir. Þeir finna auð sæti fyrir notendur sína þar sem það á við og þeir eru þjálfaðir til þess að finna ýmsa hluti svo sem lykla eða hanska sem notendur missa á ferðum sínum með hundinum. Leiðsöguhundar eru ekki síður góðir félagar og mörg dæmi eru um að þeir hafi rofið félagslega einangrun notenda sinna og stuðlað að virkari þátttöku þeirra í samfélaginu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Lionsklúbbarnir á Suðurnesjum munu selja Rauðu fjöðrina dagana 31. mars til 3. apríl næstkomandi og við hvetjum alla til að taka vel á móti sölufólki okkar og hvetjum við alla til að styðja við þetta mikilvæga verkefni. 

Víðir Tómasson,
svæðisstjóri.