Lífið er núna
Lífið er núna! Það er skjalfest í framtíðinni að sveitarfélögin Reykjanesbær, Garður og Sandgerði sameinast. Lífsgæðin sem íbúar uppskera verða enn betri, enn meira af öllu því góða. Fjölbreyttara atvinnulíf, fleiri möguleikar til menntunar og heilsa bæjarbúa betri.
Eftir að hafa hlustað á fulltrúa tveggja stjórnmálaflokka úr Reykjanesbæ í samstarfsnefndinni um sameiningu og þingmanninn okkar (okkar þar sem hann er eini þingmaðurinn úr sveitarfélögunum þremur) á fundinum í Stapa, sannfærðist ég um að ef þessir menn eru sammála þá er ekki flókið að stjórn þessara sveitarfélaga sé á einni hendi í stað þriggja. Enda sagði Reynir Sveinsson formaður samstarfsnefndarinnar og fulltrúi Sandgerðis að hann hefði unnið í sveitarstjórnamálum fyrir sveitarfélagið sitt til margra ára og myndi halda því áfram eftir sameininguna.
Árni Sigfússon sannfærði mig um að ef sveitarfélögin þrjú sameinuðust hefði það mjög jákvæð áhrif fyrir atvinnuuppbyggingu á svæðinu núna. Jóhann Geirdal minnti okkur einnig á að kerfið sem við lifum við í dag var hannað fyrir þarfir íbúa fyrir mörg hundruð árum en ekki þarfirnar núna. Við lifum á miklum breytingatímum sem fela í sér ótal tækifæri.
Það er táknrænt fyrir þingmanninn okkar, Hjálmar Árnason, að hann bauð fram starfskrafta sína til að vinna að menntamálum á alþingi frekar en sem skólameistari Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Síðan hefur hann bætt sameiningu sveitarfélaga við og hefur unnið stórkostlegt starf í málaflokknum. Núna vill hann að sveitarfélögin sem hann er fulltrúi fyrir á alþingi, sameinist. Kannski er spurningin sem íbúar sveitarfélagann eru að svara þann. 8. október n.k. hvort við viljum gefa þingmanninum okkar bestu mögulegar aðstæður til að vinna svæðinu brautargengi?
Á fundinum komu fyrirspurnir til ParX viðskiptaráðgjöf IBM sem vann skýrslu að beiðni Samstarfefndar um undirbúning kosninga um sameiningu Reykjanesbæjar, Sandgerðis og sveitarfélagsins Garðs. Ég tek það fram að jöfnunarsjóður sveitafélagana greiðir þann kostnað og allan kostnaðinn við kosninguna. Fyrirspurnir komu úr salnum til að fá skýrt fram hver afstaða ráðgjafafyrirtækisins væri. Höfðu þeir lesið út úr skýrslunni að þeir mæltu með sameiningunni? Í máli bæjarstjórans í sveitarfélagsins Garðs kom fram að þeir áttu að vinna skýrsluna hlutlaust sem þeir gerðu en þegar hún er lesin er auðveilt að ætla að þeir mæli með sameiningunni því að upplýsingarnar um ávinning allra eru svo augljósar.
Ef einhver hefði sagt við mig fyrir 12 árum að sameina Keflavík, Njarðvík og Hafnir hefði ég staðið á öndinni. Ef sá hinn sami hefði sagt við mig fyrir 3 árum að í Reykjanesbæ yrði starfræktur háskóli hefði ég staðið enn meira á öndinni.
Leyfum okkar kjörnu hugsjónarstjóramálamönnum að vinna sitt starf núna.
Á íbúaþinginu í Reykjanesbæ þann 10. september s.l. kom margt áhugavert og framkvæmanlegt fram, m.a. um menntamál og atvinnuuppbyggingu.
Ef þú íbúi góður ert foreldri, amma eða afi barns sem á eftir að mennta sig þá sýnir þú ábyrgð með því að kjósa sameiningu. Með því ertu að auka möguleika á menntun, auka valmöguleika menntaðs fólks, auka heilbrigði (rannsóknir sýna alveg skýrt að menntun eykur heilbrigði) og þú ert að kjósa að sjá afkomendur þína oftar og gefa þeim meiri möguleika á að verja tíma símum með stórfjölskyldunni því að þeir geta búið í sameinaða sveitarfélaginu með fleiri valmöguleikum á störfum fyrir menntað fólk.
Það er enginn vafi í mínum huga að draumasveitarfélagið getur orðið að veruleika núna. Leyfum sveitarstjóramálunum okkar að njóta sín og nýja sameinaða sveitarfélagið verður eftirsótt að lifa og vinna í.
Þetta getur hugsandi fólk leitt til leiðar og á næsta íbúaþingi verða íbúar Garðs og Sandgerðis með.
Ólafur Grétar Gunnarsson, ráðgjafi hjá ÓB ráðgjöf