Lestrarerfiðleikar hjá fullorðnum
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum ásamt Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis, Iðnsveinafélagi Suðurnesja, Verslunarmannafélagi Suðurnesja og Starfsmannafélagi Suðurnesja standa fyrir átaki í málefnum fullorðinna með lestrar- og stafsetningarerfiðleika. Boðið verður upp á greiningu og ráðgjöf fyrir einstaklinga sem vilja ná betri tökum á því að lesa og stafsetja. Rannveig G. Lund er sérfræðingur á þessu sviði og mun hún annast þessa þjónustu fyrir Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Rannveig mun meta stöðuna einstaklingslega hjá þeim sem þess óska og tekur athugun og viðtal um 40 mínútur. Stuttu síðar á hún fund með hverjum og einum og gefur ráð út frá niðurstöðum.
Einstaklingar sem eiga í erfiðleikum með eftirfarandi, eiga erindi í greininguna:
· að lesa upphátt
· að lesa hratt
· að lesa langar bækur eða langar greinar í blaði
· að halda athyglinni við lesefnið og muna það
· að stafsetja
Greiningin mun fara fram 14. febrúar hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Nánari upplýsingar og skráning er í síma 421 7500.