Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Lést á hótelherbergi eftir of stóran skammt
Mánudagur 3. janúar 2005 kl. 15:57

Lést á hótelherbergi eftir of stóran skammt

Wendy Papas var aðeins 18 ára er hún lést á hótelherbergi eftir að hafa tekið inn banvænan skammt af e-töflunni. „Við sátum saman niðri að kvöldverði á hótelbarnum, þegar Wendy dró fram poka sem innihélt nokkrar töflur.“ James Hatcher, 26 ára gamall unnusti hennar kvað Wendy upphaflega hafa tekið inn tvær töflur, á meðan hann hafi sjálfur tekið inn eina, kvað hann þau fljótlega hafa fundið til ógleði og í framhaldi af því farið upp á herbergi. Hatcher, sem er málari og hönnuður sagðist svo frá: „Þegar við fórum að sofa þá skildi Wendy eftir poka á náttborðinu með nokkrum töflum. Við fórum snemma i rúmið. Ég vaknaði síðar um miðnættið og tók utan um Wendy, fann ég að eitthvað var að. Hringdi ég þá í starfsfólk hótelsins sem kallaði til sjúkrabíl. Sjúkraliðar reyndu lífgunartilraunir, en án árangurs.“ Þegar lögreglan leitaði síðar í herberginu þá fundu þeir einungis tvær töflur.
Krufning leiddi síðar í ljós að Wendy hafði látist af of stórum skammti af Ecstasy. Dr. Allen Anscombe sagði: „Miðað við það magn af MDMA sem fannst í blóði Wendyar, þá er nær öruggt að hún hafi fengið hjartaáfall.“
Krufningalæknirinn sagði: „Ekkert er eins sorglegt og dauði ungrar manneskju sem átti bjart lífið framundan. Lykilatriði þessa dauðsfalls er hið gríðarlega eiturmagn sem greyndist í blóði hennar, var það margfaldur banvænn skammtur. Þetta er sannarlega harmleikur, sem hlaut að koma að. Það er einlæg von mín að atburður sem þessi verði öðrum víti til varnaðar.“ Syrgjandi foreldrar Wendyar kváðu hana hafa verið duglegan námsmann sem stundað hafi nám sitt af kostgæfni.

Ásakar unnustan um ótímabært andlát hennar!
Eftir réttarhöldin sagðist móðir Wendyar kenna unnustanum um. „Ég sé hlutina í öðru ljósi núna. Ég efast um að hún hefði leiðst út í fíkniefni hefði hún ekki verið með Hatcher. Hann var hennar fyrsta ást, hún var alltaf svo áhrifagjarn krakki. Fjölskyldan okkar er niðurbrotin, yngri systir hennar grætur sig í svefn, ég lifi einn dag í einu. Hefði ég vitað hvers konar manneskja unnustinn er, þá hefði ég bannað henni að vera með honum. Vil ég nota tækifærið og benda foreldrum og öðrum forráðamönnum á að barnið er okkar dýrmætasta eign og ættum við því að gefa því allan þann tíma og ummhyggju sem það kann að þarfnast, áður en það heldur út í lífið, til þess að hefja sína sjálfstæðu baráttu.“

Nokkrar vísindalegar staðreyndir um skaðsemi Ecstasy
Samkvæmt áður birtu áliti virtra vísindamanna sem rannsakað hafa e-töfluna (MDMA, virka eiturefnið í töflunni), þá getur það orsakað skyndilegan dauða og eða ævarandi heilaskemmdir. Dr. Stephen Kish, Kanada, er stýrði nýlegum rannsóknum á efninu, skrifaði í vísindatímaritið, Neurology, þar sem hann gerði samanburð (krufningu) á heila þeirra sem höfðu verið Ecstasy neytendur og nokkurra einstaklinga sem höfðu aldrei reynt efnið. Niðurstaðan varð m.a. sú að neysla á efninu leiddi til fækkunnar ýmissa boðefna til heilans. Magn boðefna reyndist vera 50-80 % minna hjá þeim sem voru virkir neytendur efnissins. Skortur á boðefmum þessum getur m.a. orsakað geðræna hegðan, þar með talið: þunglyndi, kvíða o.s.frv. Vísindamenn ætla að það sé í kringum 75 sinnum meiri hætta á að þeir sem nota efnið verði fyrir breyttri geðrænni hegðan en þeir sem ekki nota efnið.

Stöðug aukning harðari fíkniefna hérlendis
Af ofanrituðu má vera ljóst að e-pillan gefur ekkert annað en skammtíma „ alsælu„ fljótlega fer allt ferlið í kringum neyslu hennar, að jafnaði hratt niður á við. Ársskýrslur (tölur) frá innlagnarstofnunum/meðferð, ásamt haldlagningar tölum yfirvalda, á svokölluðum sterkari fíkniefnum, Amfetamíni og Kókaíni, sýna, að stöðug aukning ofangreindra efna, er í umferð hérlendis. Rannsóknir sýna jafnframt að jafnaðarlega myndar neytandinn fljótlega mikið þol fyrir e-töflunni, þ.e.a.s. hann þarf stöðugt meira magn til að ná upp vímunni og verður því iðulega styttra í að hann fari út í neyslu á ofangreindum harðari efnum.

Þýtt og staðfært að hluta úr bresku pressunni 2004.

Elías Kristjánsson
foreldri og áhugamaður
um fíkniefnaforvarnir
Reykjanesbæ


Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024