Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Aðsent

Lengra fæðingarorlof – allra hagur!
Þriðjudagur 11. apríl 2023 kl. 08:27

Lengra fæðingarorlof – allra hagur!

Það er áhyggjuefni ótal foreldra að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Svo þungt hvílir þetta á mörgum foreldrum að fæðingarorlofið verður gjarnan undirlagt áhyggjum af því hvað tekur við að því loknu. Dagforeldrar eru alls ekki alltaf í boði og þá tekur við púsluspil milli foreldra, ættingja og stundum vina með tilheyrandi skipulagi og jafnvel skutli. Sumir foreldrar hafa jafnvel neyðst til að dreifa orlofstöku yfir lengri tíma með tilheyrandi lækkun á greiðslum og skerðingu á ráðstöfunartekjum.

Það er algjörlega óásættanlegt í íslensku nútímasamfélagi að of margir foreldrar þurfi að hafa sterkt tengslanet í kringum sig til þess að geta komist aftur út á vinnumarkað eða í nám að loknu fæðingarorlofi. Ein lausnin er að lengja fæðingarorlof enn frekar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þó aðeins séu rúm tvö ár síðan fæðingarorlof var lengt úr níu mánuðum í tólf teljum við afar mikilvægt að halda áfram á þeirri vegferð og að fæðingarorlofið verði lengt í tvö ár í áföngum. Það er nefnilega næsta víst að sú aðgerð muni eyða út óvissuþættinum sem verður til við lok fæðingarorlofs og brúa bilið frá fæðingarorlofi yfir í leikskóla. Með því að tvöfalda tímabil núverandi laga yrði réttur barnafjölskyldna tryggður og  foreldrar fengið svigrúm til að haga orlofstöku eftir þörfum fjölskyldunnar. Þá yrði þetta öflug aðgerð til jöfnuðar og mikilvæg stuðningsaðgerð ríkis til sveitarfélaga sem ráða ekki við að mæta þörfum fjölskyldna að fæðingarorlofi loknu eins og staðan er í dag. Með þessu gætu sveitarfélög einbeitt sé að því að hlúa að starfsemi leikskóla fyrir tveggja til sex ára börn og eflt enn frekar uppeldis-, náms- og starfsumhverfi þeirra og starfsfólks.

Við gerum okkur vissulega grein fyrir því að allir foreldrar vilja ekki vera í svo löngu fæðingarorlofi. Þá er mikilvægt að hafa í huga að hér er einungis verið að tala um rétt foreldra en ekki skyldu og kjósi einhverjir að fara í styttra orlof yrði það engin fyrirstaða. Annað sem er afar mikilvægt þegar kemur að fæðingarorlofi eru greiðslur fæðingarorlofssjóðs en tryggja verður að lágmarksgreiðslur sjóðsins verði ekki undir lágmarkslaunum.

Á landsfundi VG helgina 17.-19.mars síðastliðinn var samþykkt sú ályktun að leggja áherslu á lengingu fæðingarorlofs í áföngum úr 12 mánuðum í 18 mánuði. Það þyrfti þó að tryggja áfram að fæðingarorlofið dreifðist jafnt á milli beggja foreldra til að það stuðli að kynjajafnrétti. Jafnframt var kveðið á um að stjórn hreyfingar VG sé falið að að halda málþing með áherslu á fæðingarorlofsmál.

Við fögnum ályktun VG og vonumst til að farið verði í útfærslu á henni fljótt og vel, bæði hvað varðar lengingu fæðingarorlofs, þó við sjálfar viljum ganga lengra og stefna á tvöföldun núverandi orlofs, og eins hvað varðar fyrirhugað málþing þar sem áhugasöm, leikin og lærð, fjalla um og vinna að hugmyndum að útfærslu á fæðingarorlofsmálum.

Hólmfríður Árnadóttir, menntunarfræðingur og formaður Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Suðurnesjum

Linda Björk Pálmadóttir, félagsfræðingur og stjórnarkona Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Suðurnesjum