Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Leigubifreiðar við Flugstöð L.E.
Sunnudagur 26. júní 2005 kl. 11:38

Leigubifreiðar við Flugstöð L.E.

Vegna greinar Atla Más Gylfasonar í Víkurfréttum fimmtudaginn 23. júní s.l. er vert að koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum.

Greinin byrjar á að leigubifreiðastjórar séu ósáttir við aðila sem koma óorði á stéttina, og er þar örugglega átt við þann leigubifreiðastjóra er lenti í því atviki sem er orsök þessa máls, við erum einnig mjög ósáttir við það fólk er álítur að það geti gengið um okkur sem einhver undirmálsfólk er það þarf á þjónustu okkar að halda, og ausið skömmum og svívirðingum yfir okkur, er aðrir “mannasiðir” eiga betur við.

Byrjun greinarinnar er frásögn konu þeirrar er í hlut á, og tilraun hennar að gera lítið úr bifreiðastjóranum og sýna hverskonar ruddi hann sé.

Frásögn bifreiðastjórans er eftirfarandi: Er ég kem að flugstöðinni bíður þar lítill hópur fólks er vanhagaði um þjónustu okkar, kona kemur að bifreið minni og kveðst vera búin að bíða í 20-30 mínútur og þurfa að komast á FlugHótel í Keflavík, einnig kom þar að karlmaður er kvaðst þurfa að komast til Reykjavíkur og spurði hvort hann gæti ekki deilt bifreiðinni með konunni, ekki vildi konan fallast á það, bifreiðastjórinn benti henni á að það væri iðulega gert í tilfellum sem þessum og varð það úr.

Einnig voru þarna tveir aðilar í viðbót er þurftu að komast á FlugHótel og gátu fengið far með bifreiðinni, en það aftók konan með öllu og vændi bifreiðastjórann um græðgi, dónaskap og lélega þjónustu. Á leiðinni að Flughóteli tuðaði hún um þessa annmarka bifreiðastjórans og hvers vegna bifreiðastjórar úr Reykjavík mættu ekki taka vinnu við flugstöðina. Er að FlugHóteli kom bauðst hún til að greiða fyrir ferðina, en var téð af hinum farþeganum að þetta væri bara í leiðinn, þannig að konan greiddi ekkert. En þess er vert að geta og blaðamanninum var margsagt, en hann einhverra hluta vegna greindi ekki frá, að þessi kona var búin að panta bifreið á stöð okkar, aðeins fyrir nokkrum mínútum og var hann á leiðinni til hennar, en hún lét ógert að geta þess við bifreiðastjórann, þannig að hún var vísvitandi að taka bifreið sem hún hlaut að gera sér grein fyrir að var ekki hennar,  heldur jós skömmum og svívirðingum og vændi bifreiðastjórann um lélega mannasiði, en hvar voru hennar?

Á þessari frásögn sést að frásagnirnar eru ekki alveg eins. Blaðamaður segir Bergþóru á Flughóteli staðfesta að saga konunnar sé eins og blaðið greinir frá.

Ég held að ég geti fullyrt að bifreiðastjórar á stöð okkar, Ökuleiðum, hafi ekki neitað fólki um akstur til Keflavíkur eða Varnarstöðvar, enda hefi ég brýnt fyrir þeim að gera það ekki, og hef ekki þurft sem stöðvarstjóri að skamma neinn enn, en ég veit að sumir “vina” okkar hinumegin hafa verið kældir niður í nokkra daga, en vonandi er það liðin tíð.

Steinþór á Hótel Keflavík segir að það sé löngu orðið tímabært að sameina leigubifreiðastöðvarnar hér í bæ, og ef til vill er það rétt hjá honum og til að upplýsa fólk hér í bæ um þau mál, vil ég upplýsa að við á Ökuleiðum og þá ef til vill ég mest, sem hefi haldið því fram. Það hafa verið haldnir margir fundir að okkar frumkvæði í gegnum tíðina, bæði hér heima og inni í Samgönguráðuneyti og ávallt strandað á mönnum Aðalstöðvarinnar að svo gæti orðið. 

Það er rætt um sameiningu Suðurnesjasvæðisins við Reykjavík 1. Október næst komandi og lýst áhyggjum á þeirri ráðstöfun. Ég hef þá trú að það sé full ástæða að hafa áhyggur. Ég hefi fengið það staðfest í Samgönguráðuneytinu að þetta sé gert að kröfu ferðaþjónustunnar.

Atvik sem þetta við flugstöðina, lýsa fyrir mér eingöngu hroka og frekju þessara viðkomandi konu, en hún er ekki sú eina sem hefir látið vandamál sín bitna á okkur í gegnum tíðina. Við erum ekki búnir að gleyma Sleipis verkfallinu hér við flugstöðina, þá voru margir tilbúnir, bæði hér í bæ og annars staðar, að  tjá sig um hverskonar villimenn við værum og  glæpsamlegt samráð við hefðum í frammi til að féfletta fólk er þyrfti að nota okkur. Ég geri mér ekki vonir um að þetta sé síðasta atlagan. 
     
Magnús Jóhannsson
Stöðvarstjóri bifreiðastöðvarinnar
Ökuleiðir Taxi-Keflavík.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024