Leiðsögn um Útskálakirkjugarð
Menningarminjadagar Evrópu (European Heritage Days) eru haldnir í september ár hvert fyrir atbeina Evrópuráðsins og Evrópusambandsins. Tilgangurinn er að vekja athygli almennings á merkum minjum í löndum ráðsins og almennt að vekja fólk til umhugsunar um gildi minja og sögu. Fornleifavernd ríkisins hefur umsjón með Menningarminjadeginum hér á landi.
Þema Íslands þetta árið er Gamlir kirkjugarðar. Fornleifaverndin býður almenningi til leiðsagnar um fjóra staði á landinu laugardaginn 10. september n.k. Staðirnir eru Ingjaldshóll á Snæfellsnesi, Keldudalur í Hegranesi í Skagafirði, Munkaþverá í Eyjafirði og Útskálar í Garði á Reykjanesi. Útskálar voru lengi meðal helstu höfuðbóla á Suðurnesjum og lá til staðarins fjöldi hjáleiga. Ekki eru um það heimildir hvenær kirkja var þar fyrst sett en ekki er ólíklegt að það hafi verið snemma í kristni hér á landi.
Fyrsti prestur á Útskálum sem um getur í heimildum hét Ormur og hefur fengið kall seint á 14. öld. Frá öndverðri 16. öld og síðar eru til ágætar heimildir um þá presta sem staðinn sátu og voru margir þeirra ágætir fræðimenn. Má þar auk annarra nefna síra Þorleif Kláusson (1627-1699) og síra Sigurð Br. Sívertsen (1808-1887). Kirkjan sem nú stendur á Útskálum var reist á árunum 1861-1863 og stækkuð árið 1895.
Kirkjugarðurinn á Útskálum er fyrir margra hluta sakir merkilegur, ekki síst fyrir þá sök að þar er að finna margar gerðir gamalla minningarmarka (legsteinar og pottjárnsverk). Höfundur þessa greinarkorns mun leiða gesti um gamla hluta kirkjugarðsins á Útskálum laugardaginn 10. september n.k. og hefst leiðsögnin klukkan 17:00.
Gunnar Bollason
verkefnisstjóri kirkjuminja Fornleifavernd ríkisins