Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Aðsent

Legó-stúlkur kynntu rannsóknir á umferðaröryggi
Föstudagur 6. nóvember 2009 kl. 16:59

Legó-stúlkur kynntu rannsóknir á umferðaröryggi

Nemendur í Myllubakkaskóla tóku sig til á dögunum og gerðu könnun meðal samnemenda sinna um umferðaröryggi við skólann sinn.


Verkefnið er einn liður í árlegri legókeppni stúlkna í 6., 7. og 8. bekk þar sem þær áttu m.a. að vinna rannsóknarverkefni um öryggi í umferð.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Stúlkurnar ákváðu að skoða umferðina í kringum skólann á morgnana og skráðu þær niður hjá sér það sem þeim þótti athugavert. Lögð var könnun fyrir nemendur í 1. - 7. bekk og eru niðurstöðurnar kynntar í bæklingi sem m.a. var kynntur Árna Sigfússyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar á fundi í gær ásamt kennara þeirra Freydísi Kneif Kolbeinsdóttur.


Bæjarstjóri tók vel á móti stúlkunum og tók niður ábendingar þær sem fram komu og verða þær skoðaðar í framhaldi.


í könnun þeirra kom fram að of fáir nota bílpúða og benda stúlkurnar á það að þá þurfi að nota fram að 10 - 12 ára aldri. Eins vantaði nokkuð upp á það að allir ættu endurskinsmerki en það leystu þær fljótt og örugglega með því að fá endurskinsmerki frá Sparisjóðnum til þess að dreifa til nemenda.


Aðrar ábendingar um úrbætur voru eftirfarandi:

-Nokkrir tóku svo kallaða u-beygju á miðri Sólvallargötunni beint fyrir framan skólann og sköpuðu þannig mikla hættu fyrir aðra vegfarandur.

-Nokkuð margir lögðu bíl á gangbraut þannig að gangangi vegfarendur komust ekki þar yfir.

-Nokkrir lögðu bíl sínum hinum megin við götuna og hleyptu börnum sínum þar út svo að þau þurftu að fara yfir gangbrautina en þar voru nokkir bílar fyrir henni.

Í bæklingnum má að lokum finna ýmis hollræði um umferðaröryggi þar sem m.a. er bent á þá staðreynd að það er bæði öryggara og hollara fyrir börn að hjóla eða ganga í skólann og að það er frítt í strætó í Reykjanesbæ.

Reykjanesbær þakkar stúlkunum kærlega fyrir góðar ábendingar og mun að sjálfsögðu skoða mögulegar úrlausnir til að bæta umferðaröryggi við skóla.

Mynd: stúlkur í 6., 7. og 8. bekk í Myllubakkaskóla kynna niðurstöður könnunar sinnar um umferðaröryggi við Myllubakkaskóla.