Landsbyggðin og fjárlagafrumvarpið!
Fjárlagafrumvarps nýrrar ríkisstjórnar var beðið með nokkurri eftirvæntingu. Viðbrögðin við hinu síðbúna frumvarpi, sem birtist þrem vikum seinna en vera átti samkvæmt þingskapalögum, eru vægast sagt blendin. Fyrst ber að nefna það sem jákvætt er að reynt er að ná hallalausum fjárlögum árið 2014. Að því hefur verið stefnt síðan haustið 2011 og umfangsmiklar aðgerðir fyrri ríkisstjórnar, reyndar allt frá miðju ári 2009, hafa miðað að því. Afkoma ríkissjóðs hefur batnað á hverju ári síðan 2008 og stórbatnað ef hinn hrikalegi halli áranna 2008 og 2009 upp á 10-14% af vergri landsframleiðslu er hafður í huga.
Ríkisfjármálaáætlunin til meðallangs tíma er hins vegar vægast sagt dapurlegt plagg eins og hún nú birtist í framreikningum fjármálaráðuneytisins. Samkvæmt henni verður afkoma ríkissjóðs í járnum næstu þrjú ár og versnar reyndar aftur milli áranna 2015 og 2016. Veldur þar ekki síst að mikilvægir tekjustofnar sem fyrri ríkisstjórn byggði upp hverfa út úr myndinni án þess að núverandi ríkisstjórn virðist ætla að aðhafast neitt í staðinn. Þannig verða á árinu 2016 mun lægri veiðigjöld, lægri virðisaukaskattur á hótelgistingu, enginn auðlegðarskattur, enginn orkuskattur og bankaskattur á þrotabú, sem núverandi ríkisstjórn hyggst taka upp, verður horfinn aftur.
Landsbyggðargleraugun
Fjárlagafrumvarp er hægt að lesa eins og fleira með mismunandi gleraugu á nefinu. Ef við bregðum nú upp landsbyggðargleraugunum og skoðum sérstaklega hvernig framlög til byggðamála og atvinnuþróunar og nýsköpunar eru meðhöndluð, birtist nöturleg mynd. Hér skal aðeins tæpt á því helsta:
1) Sóknaráætlanir landshlutanna, sem fá á þessu ári 400 m. kr., eru þurrkaðar út. Eftir standa 15 m. kr. sem á að nota í aðkeypta sérfræðiþjónustu til að gera úttekt. Óþarfi er að eyða mörgum orðum í hvílíkt bakslag hér er á ferðinni varðandi sóknarstefnu í byggðamálum. Mikil vinna hefur verðið lögð í það af hundruðum sveitarstjórnarmanna og fagfólks að móta aðferðafræðina, auk þess sem stjórnarráðið hefur byggt upp stýrinet ráðuneyta til að einfalda samskipti við aðila í landshlutunum. Öll þessi vinna er nú sett í uppnám og hugmyndafræðin um völd og áhrif út í landshlutana einnig.
2) Sérstakt framlag til Byggðastofnunar til að styðja við brothættar byggðir uppá 50 m. kr. er fellt brott.
3) Niðurgreiðsla húshitunar á köldum svæðum er lækkuð um 75 m. kr. Í fjárlögum yfirstandandi árs var hækkun uppá 175 m .kr. á þessum lið og var það hugsað sem fyrsti áfangi af þremur til að koma þessum málum í viðunandi horf. Í stað þess að komast áfram er nú farið afturábak.
4) Liðurinn jöfnun námskostnaðar, svonefndir dreifbýlisstyrkir, er skertur um 8,8 m. kr.
5) Felld er niður fjárveiting á liðnum jöfnun flutningskostnaðar uppá 196,5 m. kr. Þetta þarf í sjálfu sér ekki að þýða að fallið verði frá jöfnun flutningskostnaðar, baráttumál sem loksins komst á í tíð fyrri ríkisstjórnar, þar sem greiðslur berast eftirá. En, það mun ekki létta róðurinn að þurfa að sækja nýja fjárveitingu í verkefnið og þá vegna samtímagreiðslna árið 2015 ef það er hugsunin.
5) Styrkir til innanlandsflugs sem nýtur stuðnings eru lækkaðir um 75 m. kr. og einnig virðist eiga að draga úr stuðningi við rekstur innanlandsflugvalla sem starfræktir eru samkvæmt þjónustusamningi við ÍSAVÍA.
6) Vegagerðinni er nú gert að skila í ríkissjóð 1252 m. kr. af mörkuðum tekjum sínum á sama tíma og verulegur samdráttur verður í almennum vegaframkvæmdum og viðhaldi.
7) Framkvæmdasjóður ferðamála, sem á þessu ári hafði úr að spila 500 m. kr. til viðbótar tekjum af gistináttagjaldi, er skertur um 359 m. kr. Með því verður verulegt bakslag í uppbyggingu nýrra áfangastaða og úrbótum á fjölsóttum ferðamannastöðum. Uppbygging í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum fær, ef eitthvað er, enn verri útreið.
8) Loks má nefna nokkur einstök verkefni sem slegin eru af eða fá harkalega útreið. Þekkingarsetur á Kirkjubæjarklaustri, svonefnd Kirkjubæjarstofa, verður af sínum 290 m. kr. Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi missir sínar 100 m. kr. sem ætlaðar voru í breytingar og endurbyggingu á húsakosti stofnunarinnar og Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Stykkishólmi er strikuð út með sambærilega 70 m. kr. fjárveitingu. Fjárveiting til byggingar verknámshúss Fjölbrautarskóla Suðurlands uppá 274,7 m. kr. fellur niður.
Almennt verður að segja að lítill metnaður einkennir fjárlagafrumvarp nýrrar ríkisstjórnar þegar kemur að framtíðarsýn og stuðningi við fjölbreytta atvinnuuppbyggingu, skapandi greinar, nýsköpun og þróun og sóknaraðgerðir í byggðamálum. Vissulega er haldið áfram með stórverkefni eins og Norðfjarðargöng, einhverjar úrbætur verða í Landeyjarhöfn o.s.frv., en heilt yfir litið boðar fjárlagafrumvarpið afturför á þessum sviðum. Niðurstaðan er að fjárlagafrumvarpið þolir illa lestur með landsbyggðargleraugu á nefinu og boðar undanhald en ekki sókn í atvinnuþróunar- og nýsköpunarmálum, ekki síst í dreifðum byggðum.
Steingrímur J. Sigfússon