Landsbjörg: Minnt á öryggi í sundi

Ábyrgðamaður ber ábyrgð á þeim börnum sem hann er með í sundi og á að fylgjast með þeim. Ósynd börn eiga alltaf að hafa armkúta, líka í vaðlaugum, og ábyrgðamenn mega ekki missa þau úr augsýn. Jafnframt er laugarvörðum skylt að fylgjast með ósyndum börnum, sem og öðrum sundlaugargestum.
Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur fólk sem fer með börn í sund; foreldra, forráðamenn og aðra, til að fylgjast vel með börnum meðan á sundferðinni stendur og forráðamenn sundlauga að vera með öryggisatriði sín á hreinu. Jafnframt hvetur félagið alla til að huga vel að sér og sínum þegar verið er í námunda við ár, vötn og sjó því eins og dæmin sýna er drukknun hljóðlát og gerir ekki boð á undan sér.