Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Laugardagur 11. janúar 2003 kl. 16:55

LÆKNAMÁL GRINDAVÍKUR

Þó nokkuð sé um liðið getur undirritaður ekki látið hjá líða að gera athugasemd við bókun meirihlutaflokkanna í bæjarstjórn Grindavíkur á fundi bæjarstjórnar 13. nóvember s.l. Sem kunnugt er hættu allir heilsugæslulæknar á Suðurnesjum störfum 1. nóvember síðastliðin. Heimilislæknar í Hafnarfirði höfðu einnig sagt upp störfum frá 1. desember. Eftir að heilbrigðisráðherra gaf út viljayfirlýsingu í lok nóvember um að hefja viðræður við Félag íslenskra heimilislækna um að opna fyrir fleiri rekstrarform í heilsugæslunni drógu læknar í Hafnarfirði til baka sínar uppsagnir og nýr framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja ræddi við fulltrúa okkar fyrrverandi heilsugæslulækna á Suðurnesjum í byrjun desember um endurráðningu okkar að stofnuninni.Í þeim viðræðum kom fram að til stæði að ráða 7-8 lækna á Suðurnes í stað 10 - 11 áður. Þannig var ekki öllum hópnum boðin endurráðning og var þar með enginn grundvöllur fyrir frekari viðræðum um endurráðningu okkar.

Forráðamenn Grindavíkurbæjar áttu viðræður við undirritaðan og Ragnar Gunnarsson á tímabilinu 1.- 8.nóv. en við störfuðum við Heilsugæslustöðina í Grindavík til loka október á liðnu ári.Bæjarstjórinn í Grindavík kom einkum fram fyrir hönd bæjarins í samtölum við okkur. Eftir að þeim samtölum var slitið bókuðu fulltrúar meirihlutans í bæjarstjórn eftirfarandi 13.nóv. s.l.: "Bæjarstjórn Grindavíkur harmar að ekki hafi tekist að ná samkomulagi við heimilislækna í Grindavík þrátt fyrir ítrekaða samningafundi með heilbrigðisyfirvöldum og læknum. Fulltrúar meirihlutans ásamt bæjarstjóra tóku frumkvæðið í sínar hendur með það í huga að reyna að ná samningum við heilsugæslulækna og gera við þá þjónustusamning. Samkomulag náðist við heilbrigðisyfirvöld en þrátt fyrir það náðust ekki samningar við lækna. Bæjarstjórn skorar á deiluaðila að ganga þegar til samninga með hagsmuni íbúa svæðisins."

Þarna eru hlutirnir orðaðir vægast sagt mjög sérkennilega. Það er rangt að forráðamenn Grindavíkurbæjar hafi tekið eitthvert frumkvæði í sínar hendur í málinu. Þeir voru kallaðir til fundar fyrirvaralaust inn í heilbrigðisráðuneyti að morgni 30.október á næst síðasta starfsdegi okkar læknanna í Grindavík. Þar var þeim falið að ræða við okkur læknana um að Grindavíkurbær tæki að sér að endurráða okkur sem okkar vinnuveitandi og að skoðað yrði að bærinn tæki við rekstri heilsugæslunnar sem reynslusveitarfélag. Bæjaryfirvöld höfðu sent bréf til heilbrigðisráðuneytis í byrjun september þar sem óskað var eftir viðræðum um að bærinn gerðist reynslusveitarfélag í þessum málaflokki en voru ekki búin að fá nein viðbrögð við þeirri beiðni þegar þeir voru kallaðir á teppið inni í ráðuneytið 30.október. Þegar ráðamenn bæjarins tala um frumkvæði bæjarins í að leysa okkar deilu eru þeir þannig að reyna að gera sinn hlut merkilegri en efni standa til.

Í bókun meirihlutans segir m.a: "Samkomulag náðist við heilbrigðisyfirvöld en þrátt fyrir það náðust ekki samningar við lækna." Þetta er einkennilega orðað en er þó að nokkru leyti rétt. Réttara væri að orða þetta þannig að fulltrúar Grindavíkurbæjar gerðu sjónarmið heilbrigðisráðuneytisins að því er virtist algjörlega að sínum og voru í reynd ekkert annað en leiksoppar ráðuneytisins.

Eins og málum er nú komið eigum við Ragnar Gunnarsson ekki von á því að snúa aftur til starfa í Grindavík. Ég harma hvernig þessi mál hafa þróast þar sem ég hef tilfinningar til svæðisins og íbúanna. Ég starfaði á heilsugæslunni í Keflavík í tæpan áratug fram í ársbyrjun 1999 og svo í Grindavík frá ársbyrjun 2001 til loka okt. s.l. og ég bjó á Suðurnesjum í 10 ár.

Ég efast ekki um að ráðamenn í Grindavík höfðu einlægan vilja til að leysa þessi mál með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi. Þegar á reynir virðist þó sem menn skorti framsýni og séu fastir í gömlum hugmyndum sem gera ekki annað en að fæla menn frá því að endast í þessum störfum til frambúðar. Séu mál heimilislækna á Suðurnesjum í heild skoðuð er þó ljóst að sú afstaða ráðamannna Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja að gefa ekki öllum læknahópnum kost á endurráðningu réð mestu um hvernig þessi mál þróuðust. Þar var nýráðinn framkvæmdastjóri hins vegar eingöngu að framfylgja fyrirmælum úr heilbrigðisráðuneytinu enda virðist nýi framkvæmdastjórinn ekki vera annað en strengjabrúða ráðuneytisins. Einnig var þar með í ráðum yfirlæknir sjúkrahússviðs HSS sem einnig er núverandi lækningaforstjóri HSS en framganga hans í þessum málum öllum og ýmis ummæli hans opinberlega voru til þess fallin að hleypa málum í enn fastari hnút.

Ég þakka öllu því góða fólki sem ég kynntist í Grindavík fyrir góð samskipti í þessi tæpu 2 ár sem ég starfaði þar og þakka samstarfsfólki fyrir ánægjulegt samstarf.

Jón Benediktsson
fyrrverandi yfirlæknir
Heilsugæslustöðvarinnar
í Grindavík
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024