Læknadeilan pirrar Kallinn

HAFIÐ ÞIÐ eitthvað velt því fyrir ykkur hver staðan í læknamálum á Suðurnesjum er í dag? Hafið þið velt því fyrir ykkur hvernig málin hafa þróast? Hafið þið horft á þingmennina, ráðherrann og ýmsa aðra tjá sig um heilsugæslumálin? Ef svo er þá hljótið þið að sjá að það er eitthvað sem enginn skilur í gangi. Kallinn er orðinn leiður á því að skrifa um þessi mál - það virðist ekkert gerast í þessum málum.ÍBÚAR SUÐURNESJA eru að láta hafa sig að fíflum. Alþingiskosningar eru framundan og lítið heyrist frá frambjóðendum um ástandið á heilsugæslunni. Árni Ragnar lét þó aðeins í sér heyra í morgunsjónvarpinu í vikunni þar sem hann ásakaði heilbrigðisráðherra um að hafa látið læknana afskiptalausa fram að þeim tíma þegar þeir hurfu á braut. Hjálmar hefur líka látið þá skoðun í ljós að þetta séu samankomin ráð heilsugæslulæknanna og liður í kjarabaráttu þeirra. Það er ekki nóg að tala - eitthvað verður að gerast.
ÞAÐ HLÝTUR AÐ vera krafa Suðurnesjamanna að á Suðurnesjum starfi heilsugæslulæknar eins og annarsstaðar á landinu. Það hlýtur einnig að vera krafa íbúanna að þeir aðilar sem standa nú í kosningabaráttu á Suðurnesjum taki til sinna ráða og komi málum á hreyfingu. Það heyrist varla frá þeim. Eru íbúar Suðurnesja alveg gjörsamlega áhugalausir um að þetta ástand lagist? Jaml, japl og fuður Kallsins eru orðin þreytt - en það verður að berjast fyrir þessum málum - hér er um mannréttindi að ræða.
KALLINUM FINNST ekki mikið um að vera í pólitíkinni á Suðurnesjum. Það er enginn kraftur í fólki né framboðum. Kannski er ástæðan sú að kjördæmið er orðið það stórt að frambjóðendur þurfa að sleikja fólk upp alla leið austur á Hornafjörð! Það heyrist ekki einu sinni í Kristjáni Pálssyni, mannsins sem Kallinn hélt að yrði öflugastur á Suðurnesjum fyrir þessar kosningar.
KOSNINGASLAGURINN er bragðdaufur og Kallinn nennir varla að skrifa um hann - enda lítið að skrifa um annað en endalaus boð í kaffisamsæti, grillveislur og opnanir ráðherra. Lítið varið í það!
BARA EIN skilaboð til þessarar blessuðu frambjóðenda sem ekkert heyrist í: reynið að vinna í málum sem skipta Suðurnesjamenn máli. Komið þið læknamálunum á hreyfingu - fyrir það uppskerið þið atkvæði. Þið eigið að vinna fyrir Suðurnesjamenn - sýnið hvað í ykkur býr!
KALLINN MINNIR á að í Víkurfréttum fyrir kosningar mun Kallinn gefa efstu mönnum af Suðurnesjum sem eru í framboði einkunn fyrir aðkomu þeirra að heilsugæsludeilunni. Kallinn hvetur lesendur til að gefa þessum mönnum einkunnir og senda á [email protected].
Kveðja, Kallinn