Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Kynning á fjarnámi við Háskólann á Akureyri
Mánudagur 15. mars 2010 kl. 17:25

Kynning á fjarnámi við Háskólann á Akureyri

- Jafnrétti til náms

Vanda þarf valið þegar kemur að því að velja sér háskóla og háskólanám. Það er mikilvægt að námsskipulag sé fjölbreytt og stuðli að því að fólk geti aflað sér menntunnar óháð búsetu, fjölskyldustærð og öðrum aðstæðum. Staðarnám hentar sumum, fjarrnám öðrum og sambland hvoru tveggja öðrum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Háskólinn á Akureyri hefur verið leiðandi í uppbyggingu fjarnáms og spilað stórt hlutverk í að mennta fólk óháð búsetu og öðrum aðstæðum sem geta staðið í vegi fyrir staðarnámi. Í dag er kennt til yfir 20 staða á landinu og óhætt er að segja að þannig leggi Háskólinn á Akureyri sinn skerf til aukins jafnréttis til náms á Íslandi.


Kynningar á fjarnámi í boði frá Háskólanum á Akureyri haustið 2010 hefjast nú í mars. Boðið verður upp á kynningu hjá Námsflokkum Hafnarfjarðar, Miðstöð símenntunnar á Suðurnesjum og Odda í Reykjavík fimmtudaginn 18. mars kl. 18:00-19:00. Fjallað verður um framboð og fyrirkomulag fjarnáms við HA og eru allir hvattir til að mæta sem hafa áhuga á fjarnámi á háskólastigi. Fjarnámið fer fram í gegnum vefinn og með myndfundum en að auki eru tölvusamskiptamiðlar nýttir til hins ýtrasta.

Það fjarnám sem er í boði hjá Háskólanum á Akureyri er:
B.S. nám í iðjuþjálfunarfræði
B.S. nám í hjúkrunarfræði
B.Ed. nám í kennarafræðum (leik- og grunnskólastig)
B.S. nám í líftækni
B.S. nám í sjávarútvegsfræði
B.S. nám í umhverfis- og orkufræði
B.S. nám í viðskiptafræði



Mynd af vef Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.