Kvef eða inflúensa
Það er munur á kvefpest og inflúensu.
Inflúensa er veirusýking sem einkennist af háum hita, hálsbólgu, hósta, máttleysi, kuldahrolli, vöðvaverkjum og höfuðverk. Inflúensa hellist yfir einstaklinga af krafti á meðan kvef kemur í mann smátt og smátt.
Á hverjum vetri gengur inflúensa yfir og hægt er að láta bólusetja sig á heilsugæslustöð til að verjast veikinni.
Kvef er líka veirusýking, dæmigerð einkenni kvefs eru hnerri, stíflað nef, hálssærindi, hósti og höfuðverkur. Einkennin vara oftast í vikutíma og eru mun vægari en einkenni inflúensu.
Það er ekki hættulegt að fá kvef, við getum haft gott af því að fá örlítið kvef til þess að örva ónæmiskerfið.
Ef að inflúensan eða kvefið breytist í bakteríusýkingu verða veikindin meiri, sem hægt er að meðhöndla með sýklalyfjum.
Kvef og inflúensa smitast með úðasmiti og því er mesta hættan á að smitast þegar maður er í nálægð við annan veikan einstakling. Þegar talað er, hóstað eða hnerrað.
Til að fyrirbyggja smit er mikilvægt að láta sér ekki verða kalt og klæða sig vel. Handþvottur er ein árangursríkasta leiðin til að fyrirbyggja smit. Góður þvottur getur fjarlægt mestan partinn af þeim sýklum sem við getum haft á höndunum. Rök sápustykki geta verið smitberar fyrir veirur og bakteríur.
Smitleiðir eru greiðar til annarra ef hóstað er og hnerrað er út í loftið. Mikilvægt er að koma í veg fyrir úðasmit með því að nota vasaklút, eða hnerra í olnbogabótina.
Ef að veikindi koma upp á heimili skulu allir heimilsmenn vera með sér handklæði. Á vinnustöðum ættu að vera einnota pappírsþurrkur til staðar.
Nota einnota snýtiklúta til að snýta sér. Henda þeim í ruslið eftir notkun og þvo sér um hendur áður en nokkuð annað er gert.
Gott er að skola hálsinn með munnskoli og nefið með saltvatnsdropum, það minnkar líkurnar á sýkingu í öndunarveginum.
Það eru ekki til lyf eða bóluefni við kvefi. Líkaminn sjálfur vinnur á sýkingunni.
Gott er að taka því rólega og reyna að láta sér líða vel, hægt er að nota hóstamixtúrur við hósta og nefúða við nefrennsli. Munnsogstöflur eru góðar til að hreinsa og mýkja hálsinn.
Ekki er nauðsynlegt að meðhöndla hita sem er undir 38,5°C, vegna þess að hitinn hefur lækningamátt og hjálpar til við að ná sýkingunni niður. Lækningamáttur líkamans er mikill.
Með kveðju
Sigríður Pálína Lyfjafræðingur