HSS
HSS

Aðsent

Fimmtudagur 14. október 1999 kl. 14:09

KRISTMUNDUR CARTER SKRIFAR: MÍN SKOÐUN OG MARGRA ANNARA!

Um fátt hefur meira verið rætt og ritað en skemmtistaðinn Strikið sem að undanförnu hefur mátt þola valdníðslu af hálfu bæjaryfirvalda sem í tvígang hafa neitað veitingamanninum Jóni M. Harðarssyni um vínveitingaleyfi með eðlilegum afgreiðslutíma. Talsmenn flestra bæjarbúa ? Andstæðingar staðarins hafa haft sig meira í frammi en hinir sem telja eðlilegt og réttlátt að Jón M. Harðarsson fái vínveitingaleyfi líkt og allir aðrir skemmtistaðir hafa fengið fram að þessu. Hafa andstæðingar Jóns gengið svo langt að fullyrða í fjölmiðlum að meirihluti bæjarbúa og reyndar flestir bæjarbúar séu á móti starfseminni. Það er einkennilegur málflutningur af hálfu aðila sem stóðu fyrir undirskriftalistasöfnun gegn þessari sömu starfsemi og fengu innan við 6% bæjarbúa til þess að skrifa undir. Þá vekur það sérstaka athygli þeirra sem skoða mótmælalistann að rúmlega helmingur þeirra sem rituðu undir voru 60 ára eða eldri. Þó skoðun hinna eldri sé ekki verri en hinna yngri þá verður listinn seint talinn sem þverskurður af vilja bæjarbúa allra. Ég ætla hvorki að fullyrða að meira en helmingur bæjarbúa séu með eða á móti starfsemi Jóns M. Harðarssonar en fer um leið fram á að talsmenn smáfélaga í sveitarfélaginu láti ógert að tala í nafni meirihluta eða flestra bæjarbúa án þess að hafa til þess sannanlegt umboð. Forsjárhyggja. Ljóst má vera að skemmtistaðurinn Strikið hefði fengið vínveitingaleyfi án tafar ef ekki stæði til að þar færi fram skemmtun sem greinilega er meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á móti skapi. Skemmtistaður án vínveitingaleyfis er svipaður og vatnslaus sundlaug, gestir verða varla margir. Afgreiðsla bæjarstjórnar gerir Jóni M. Harðarssyni ómögulegt að reka sína starfsemi. Jafnframt er bæjarstjórn með afgreiðslu sinni að velja fyrir mig og aðra bæjarbúa hvaða tegund skemmtunar ég geti sótt. Slík forræðishyggja kemur mér ekki á óvart frá mönnum sem áður sáu Sovétríkin sálugu sem draumaríki, en ekki átti ég von á slíku frá fólki sem í gegnum árin hefur talið sig vera talsmenn frelsis, þar sem einstaklingurinn á að fá tækifæri til orða og athafna án of mikilla afskipta hins opinbera. Takk fyrir. Ef bæjarstjórn ákveður að Jón M. Harðarsson fái aðeins að afgreiða áfengi til klukkan 01:00 eftir miðnætti eru allar líkur á því að aðrir skemmtistaðir í Reykjanesbæ munu fá sömu afgreiðslu í framtíðinni. Skemmtistaðir munu því í framtíðinni loka að öllu jöfnu kl. 01:00 eftir miðnætti haldi bæjarstjórn fast í ákvörðun sína. Forsjárhyggja bæjarstjórnar nær því einnig til þess að ákveða hvenær ég fer út að skemmta mér og hvenær æskilegt sé að ég fari heim. Takk fyrir það. Orðrómur. Fjölmargir hafa í ræðu og riti fullyrt að stöðum sem þessum fylgi eiturlyfjaneysla, sala og vændi. Enginn hefur hins vegar geta sýnt fram á að svo sé - enda eru engar sannanir, skýrslur eða greinagerðir, sem mark er á takandi, til sem staðfesta að skemmtistað sem þessum fylgi meiri eiturlyfjaneysla og vændi en annarri starfsemi. Þessi orðrómur sem andstæðingar Jóns M. Harðarssonar hafa lagt mikið á sig við að útbreiða er því ekkert annað en orðrómur. Mín skoðun ! Undirrituðum er nokkuð sama hvaða tegund skemmtunar fer fram á skemmtistaðnum Strikinu. Hins vegar er það skoðun mín að Jón M. Harðarsson eigi að fá sömu tækifæri til að reka sitt fyrirtæki og aðrir sem reka sambærilega starfsemi hvort sem hún er hér í Reykjanesbæ, Reykjavík eða annars staðar á landinu. Öll takmörkun á hans starfsemi umfram það sem gengur og gerist hlýtur að vera brot á réttindum hans sem einstaklingi í atvinnurekstri. Það eru döpur skilaboð bæjarstjórnar til íbúa sveitarfélagsins. A.m.k. er það mín skoðun, ekki meirihluta bæjarbúa, ekki flestra, ...bara mín. Kristmundur Carter fyrrverandi stjórnarmaður í Félagi ungra sjálfstæðismanna.
Bílakjarninn
Bílakjarninn