Miðvikudagur 27. nóvember 2002 kl. 21:49
Kristján hefur meira fylgi samkvæmt skoðanakönnun

Á borgarafundinum sem stuðningsmenn Kristjáns Pálssonar alþingismanns héldu í Stapa í kvöld var kynnt skoðanakönnun sem framkvæmd var af Myndbæ ehf. en skoðanakönnunin var framkvæmd að kvöldi 26. nóvember. Lögð var ein spurning fyrir svarendur og hljóðaði hún þannig: "Hvorn telur þú heppilegri leiðtoga á lista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi, Árni Ragnar Árnason alþingismaður eða Kristján Pálsson alþingismaður?"Úrtakið var 600 manna slembiúrtak á Suðurnesjum og náðist í 403 manns. 231 tóku afstöðu og voru 69% sem vildu sjá Kristján Pálsson sem leiðtoga á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og 31% vildu sjá Árna Ragnar Árnason sem leiðtoga.