Kosning í Sjúkraliðafélaginu
Að hafa áskrift að sæti sínu er engum manni hollt. Formaður stéttarfélags þarf að vinna fyrir sínu eins og hver annar launamaður. Það sem gerist hins vegar oft er, að slík kosning er persónugerð.
Starf formanns
Starfssvið formanns er það sem félagsmenn setja honum fyrir að gera. Að efla tengsl og vera í samvinnu við önnur stéttarfélög er hluti af því. Að búa til tenglanet er nauðsynlegt að gera til að koma í veg fyrir að félagið verði einyrki í starfi sínu, því öll félög þurfa á samvinnu að halda. Að byggja upp traust á milli stofnanna og viðsemjenda þarf að gera, og það gerir hvaða formaður sem er, hér er það ekki persónan heldur starfið sem um er að ræða. Það má vissulega benda á að misjafnt er hversu vel mönnum gengur að mynda tengsl, en svo er með allt sem mannfólkið tekur sér fyrir hendur.
Sýnileiki
Formaður er málsvari félags út á við og hefur það áhrif hver orðræða formanns er, hvernig hann kemur fyrir þ.e. háttur hans og viðmót. Allt er þetta hluti af ásýnd félagsins. Formaður þarf að vera sýnilegur ekki bara út á við heldur fyrir félagsmönnum sínum líka. Þegar farið er á móti sitjandi formanni er á brattann að sækja, þar sem annar sjúkraliðinn er óþekktur á meðan formaður nýtur forskots. Ég treysti því að sjúkraliðar dæmi ekki gildi manns eftir stutta viðkynning - bárurnar rísa oft hæst þar sem perlurnar eru á botninum.
Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði og frambjóðandi í formannskjöri Slfí.