Kortlagning og samstarfsmótun íslenskrar ferðaþjónustu
- Vinnustofa á Suðurnesjum í Eldey (Ásbrú) 8. janúar 2013 frá kl. 09:00 til 16:00
Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja, vill vekja athygli allra þeirra sem að á einhvern hátt tengjast ferðaþjónustu á Suðurnesjum á verkefni sem að nú er farið af stað á landsvísu. Verkefnið snýst um að greina stöðu íslenskrar ferðaþjónustu og draga fram forgangsröðun og tillögur þeirra einstaklinga sem að vinna í ferðaþjónustunni varðandi helstu áherslur greinarinnar til næstu framtíðar. Ráðgjafafyrirtækið Gekon hefur verið fengið til að stýra þessari vinnu vegna þeirrar reynslu sem að fyrritækið hefur af því að vinna fyrir íslenska jarðvarmann (www.icelandgeothermal.is).
Upphafsfundur verkefnisins var haldinn þann 9. október og með því að fara inn á heimasíðu Gekon, gekon.is , og velja ferðaþjónustuklasann undir klasar og ýta síðan á "Upphafsfundur" neðarlega í þeirri umfjöllun, þá er hægt að sjá upptökur frá fundinum.
Hluti af þessari greiningarvinnu er fólgin í vinnustofum sem haldnar verða út um allt land og verður sú fyrsta haldin í Eldey þann 8. janúar.
Greina á hvert landsvæði fyrir sig og síðan landið í heild. Næsta haust á síðan að liggja fyrir hvert íslensk ferðaþjónusta vill stefna á næstu árum og hvaða verkefni þarf að ráðast í til að ná m.a. markmiðum um aukna samkeppnishæfni og meiri arðsemi.
Markmið vinnustofanna er að draga fram ólík sjónarmið allra þeirra aðila sem tengjast ferðaþjónustu með beinum og óbeinum hætti. Þarna er horft til sérstöðu hvers landshluta fyrir sig og horft fram á við. Hindranir og vandamál íhuguð og leitað sameiginlegra lausna.
Það er von okkar sem að þessu standa að sem flestir sjái sér hag í því að vera með í þessu samstarfi.
Allar frekari upplýsingar veita starfsfólk Gekon.
Friðfinnur Hermannsson S: 860 1045
Rósbjörg Jónsdóttir S: 892 2008