Bygg
Bygg

Aðsent

Konur í Kvenfélagi Keflavíkur við prjón á ungbarnahúfum
Föstudagur 23. apríl 2010 kl. 09:44

Konur í Kvenfélagi Keflavíkur við prjón á ungbarnahúfum

Kvenfélagssamband Íslands er 80 ára á þessu ári. Í tilefni þess ákvað það að hrinda á stað verkefni fyrir konur í kvenfélögunum út um allt land til að vinna að. Þetta verkefni kallast húfuverkefni og eru prjónaðar ungbarnahúfur handa öllum börnum er fæðast á landinu þetta árið. Húfurnar fara inn á allar fæðingarstöðvar á landinu og er þeim úthlutað af ljósmæðrum. Áætlað er að prjóna 5.500 húfur, sem er fjöldi fæðinga á Íslandi miðað við síðasta ár.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Verkefnið gengur vel og nú í apríllok er búið að prjóna um 3.400 húfur. Þetta er einstaklega skemmtilegt verkefni. Sérstaklega þegar hugsað er til þess að húfurnar sem verið er að prjóna, vermi og eigi eftir að verma öllum ljósgeislunum sem eru fæddir og eru á leiðinni í heiminn á árinu.


Við kvenfélagskonur í Kvenfélagi Keflavíkur viljum þakka sérstaklega framlagi kvenna utan kvenfélagsins sem hafa verið að leggja okkur lið með prjónaskap sínum. Þúsund þakkir fyrir það.


Kvenfélag Keflavíkur var stofnað 1944 og á sér því langa sögu. Það hefur byggt um starfsemi sína með að hjálpa samfélaginu að komast til verks og virðingar á svo margan hátt með kærleiksríku þeli til samborgarans ásamt framlags til óteljandi verka, athafna og uppbyggingar sem unnin hafa verið hér í bæ og í nágranna samfélögunum. Þessu verður haldið ótrautt áfram, enda er þörfin alltaf jafn brýn.


Kæru konur, kvenfélagið er alltaf opið fyrir fleirum félagskonum svo endilega látið skrá ykkur í félagið og verið með í að bæta samfélagið okkar. Eins og ég sagði, þörfin er alltaf jafn brýn. Nú, svo má ekki gleyma því að það er mjög gaman að vinna saman.


Gleðilegt sumar.
Sumarrós Hildur,
Kvenfélagi Keflavíkur.