Kompás - nýr íslenskur fréttaþáttur hefst á sunnudag

Fréttarannsókn og umsjón er í höndum Jóhannesar Kr. Kristjánsson (fyrrum blaðamanns á Víkurfréttum) en kynnar eru m.a. Sigmundur Ernir Rúnarsson og Logi Bergmann Eiðsson.
Í fyrsta þætti verða tekin fyrir þrjú mál; dregnar verða fram nýjar og sláandi upplýsingar um meint ólöglegt vinnuafl á Íslandi, fjallað um nýtt undralyf sem talið er að muni reynast þýðingarmikið í baráttunni gegn brjóstakrabbameini og að endingu verða umsvif hljómsveitarinnar Sigur Rósar skoðuð út frá viðskiptalegu sjónarhorni, en reksturinn í kringum þessa heimsþekktu íslenku hljómsveit er orðinn að stóru fyrirtæki.
NFS - alltaf, allstaðar
Kompás er einn af lykilþáttum á nýju sjónvarpsstöðinni NFS sem fór í loftið í dag, föstudag. NFS er fyrsta stöðin sinnar tegundar á Íslandi; sjónvarpsstöð sem helgar sig fréttum og fréttatengdu efni.
Með tilkomu NFS verður í fyrsta sinn boðið upp á fréttir í sjónvarpi frá morgni til miðnættis en á virkum dögum verða sendir út fréttatímar frá nýrri fréttastofu NFS í Skaftahlíð 24 á klukkutíma fresti og fréttayfirlit á hálftíma fresti. Um helgar eru fréttir á tveggja klukkutíma fresti frá morgni til kvölds. Sérstök áhersla verður lögð á hádegis- og kvöldfréttatíma sem verða ítarlegir og langir þar sem íþróttum og veðri verða einnig gerð betri skil en áður hefur tíðkast hér á landi. Auk þess verður boðið uppá fjölda nýrra íslenskra frétta- og fréttaskýringaþátta og mun því íslensk dagskrárgerð skipa ríflega 80% af dagskrá stöðvarinnar.
NFS hefur það að höfðumarkmiði að vera til staðar, flytja nýjustu fréttirnar, alltaf, allstaðar. Öll útsending stöðvarinnar verður því í opinni dagskrá og ekki verður aðeins hægt að nálgast hana í gegnum sjónvarp á rás 6 hjá Digital Íslandi heldur einnig í tölvum hjá VísirVefTV á visir.is. Ennfremur gefst kostur að hlýða á hana nær alfarið á Talstöðinni.
Kompás er á dagskrá NFS og Stöðvar 2 í opinni dagskrá kl. 19.10 á sunnudögum.