Bygg
Bygg

Aðsent

Klárir!
Þriðjudagur 23. apríl 2013 kl. 08:34

Klárir!

Þegar þetta töfraorð hljómaði um borð í loðnubátunum sem að ég var á fyrir mörgum tunglum síðan, þá hættu menn því sem þeir voru að gera og ruku út á dekk til að gera klárt til að kasta nótinni. Á þessum bátum voru yfirleitt 14 karlar sem að unnu eins og einn maður að sama markmiði, en það var að fylla dallinn eins fljótt og hægt var. Á þessum bátum eins og á öllum skipum var einn maður sem stjórnaði en það var skipsstjórinn. Ég var þess heiðurs aðnjótandi að fá að vera með nokkrum landsþekktum aflamönnum. Þar á meðal Gísla Jóhannessyni á Jóni Finnssyni, Geir Garðarssyni á Náttfara og Jóni Eyfjörð á Hörpu. Þessir menn voru um margt ólíkir í starfi og einnig sem persónur en eitt áttu þeir sammerkt, að það vafðist ekkert fyrir neinum hver stjórnaði um borð í þeirra skipi. Ég hefði ekki viljað vera í sporum þess manns sem hefði þegar búið var að kalla !KLÁRIR! sagt við þessa menn, „Ég kem þegar ég er búinn að borða“ eða „þetta er ekki nógu stór torfa til að kasta á“ eða „við strákarnir ætlum aðeins að ræða málin svo komum við“. Ég er ansi hræddur um að maður sem ekki kom sér út á dekk á stundinni þegar kallað var, hefði ekki orðið langlífur um borð í bát hjá þessum mönnum.

Ég hugsaði tilbaka til sjómennsku áranna þegar ég horfði á framboðsfund í sjónvarpinu fyrir alþingiskosningarnar sem nú fara í hönd. Ég veit ekkert hvað ég ætla að kjósa og eftir að hafa horft á þennan þátt þá er ég engu nær. Ég hef bitra reynslu af þeim flokkum sem stjórnað hafa landinu fram að þessu, og þess vegna heilla þeir mig ekkert sérstaklega. Af nýju framboðunum er ekkert sem freistar mín, og mér finnst það ekki beint trúverðugt þegar fulltrúar þeirra svöruðu spurningum um hvernig þeir ætluðu að leysa hin ýmsu mál, að þeir væru ekki búin að gera upp hug sinn hvernig ætti að leysa málin, þetta er í skoðun eða nefnd. Mér finnst sem kjósanda að þeir sem bjóða sig fram til alþingis eigi að vita hvernig þeir ætla að stjórna landinu og að þeir eigi að geta sagt fólki frá því.

Það sem ég vil sjá eftir kosningar er forsætisráðherra sem stjórnar þjóðarskútunni eins og góður skipstjóri. Ég vil sjá alþingi sem skipað er af 63 körlum og konum stefna að sama markmiði alveg eins og samhent áhöfn, að því að gera þetta land okkar að besta landi í heimi til að búa á. Virðing alþingis er fyrir neðan allar hellur og störfin þar hafa einkennst af baráttu á milli meirihluta og minnihluta. Störfin á alþingi hafa ekki snúist um að leysa mál og koma góðum málum í gegn heldur eilífri valdabaráttu. Þessu verður að linna. Menn verða að fara að vinna saman eins og fullorðið fólk.

Í þessu landi eru tvær stéttir. Svívirðilega ríka fólkið og svo restin. Það eru ekki nema rúmlega 300.000 manns sem búa á þessari eyju. Við höfum allt til alls. Við getum öll haft það gott. Við eigum bestu fiskimið í heimi. Við eigum orkuna bæði rafmagn og hita og við eigum hreina og ósnortna náttúru sem útlendingar keppast um að koma og skoða. Við höfum nóg af leiðum til að afla tekna þannig að allir í landinu gætu lifað mannsæmandi lífi. Ég er ekki að tala um að koma á einhverjum kommúnisma, nei en ég vill að kökunni verði skipt aðeins jafnara, þ.e. að þeir sem eru ríkir verði aðeins minna ríkir og að allir hinir geti lifað mannsæmandi lífi. Það gengur ekki lengur að á meðan ríka fólkið hefur áhyggjur af því ,í hvaða skattaskjóli það á að geyma peningana næst, þá ganga hér um öryrkjar, gamalt fólk og atvinnulaust fólk sem hefur áhyggjur af því hvernig það á að fara að því að láta enda ná saman. Þessu verður að breyta.

Ef það er einhver flokkur sem að treystir sér til að uppfylla þessa drauma mína, þá endilega látið mig vita fyrir kjördag.

Gunnar Jóhannesson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn