Klámkvöld á aðventu
Menningarbærinn Reykjanesbær tekur sífellt á sig fjölbreyttari mynd, en er hún öll af hinu góða? Í nýrri og glæsilegri Hafnargötu heldur nú klámiðnaðurinn innreið sína. Frá þessu var greint í Víkurfréttum þann 11. des. sl. Blaðið virðist hafa sérstakan áhuga á þessum málum og færir klámvæðingunni ókeypis auglýsingar. Á vef Víkurfrétta var ýtarlega sagt frá því að á veitingastaðnum Castró við Hafnargötu yrði klámkvöld haldið. Eitthvað virðist blaðið síðan hafa séð að sér. Í prentaðri útgáfu þess hafði “ fréttinni” verið breytt úr klámkvöldi í nektar og erótíkur kvöld. Minnir það mig á úlfinn sem brá sér í dulargervi í sögunni um Rauðhettu.
Síðan var sagt frá því að dansað yrði fáklætt í búrum og sýnd tæki og tól klámiðnaðarins. Auk þess sem klámkóngur Íslands myndi mæta á svæðið. Hvaða ólánsami einstaklingur sem það nú er. Greint var frá því að konur fengju ókeypis aðgang. Skólafólk sem er að ljúka jólaprófum var síðan boðið sérstaklega velkomið. Síðan rann stóra stundin upp og voru þá einnig sýndar klámmyndir á breiðtjaldi og þær sagðar vera erótík.
Markhópurinn var ungt fólk, 16 – 20 ára, sem flest býr í foreldrahúsum. Klámvæðingin lætur greinilega ekki sitt eftir liggja í jólaundirbúningnum á aðventunni. Nú er dansað nakið í búrum en ekki í jólafötum í kringum jólatré.
Hvert stefnum við sem samfélag ? Var dóttir þín eða sonur á klámkvöldi á aðventunni? Dansar dóttir þín nakin í búri ? Þetta kann að hljóma harkalega en gleymum því ekki að fórnarlömb klámiðnaðarins eiga líka foreldra. Hvernig skyldi þeim líða? Er klámvæðingin bara sjálfsögð og eðlileg ? Er okkur alveg sama? Er þetta bara raus í mér? Hvað þurfum við til þess að skilja hvað sé skynsamlegt og hvað ekki?
Er unga fólkið vandamálið eða erum við foreldrarnir ef til vill vandamálið?
Foreldrar, gleymum ekki okkar mikilvæga hlutverki. Höfum í huga að unga fólkið er áhrifagjarnt og sækir sér fyrirmyndir. Kennum börnum okkar hollar lífsreglur. Kennum þeim réttlæti, réttvísi og ráðvendni. Veitum þeim óreyndu þekkingu og aðgætni. Vöknum af vondum draumi fyrirhyggjuleysis.
Stöndum saman gegn klámvæðingunni og mótmælum með framúrskarandi dómgreind að vopni.
Birgir Þórarinsson.
Höfundur er BA í guðfræði og situr í samstarfsnefnd lögreglu og sveitarfélaga á Suðurnesjum.