Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fundar í Sandgerði
Miðvikudagur 14. nóvember 2007 kl. 17:32

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fundar í Sandgerði

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi heldur aðalfund sinn laugardaginn 17. nóvember nk. Fundurinn fer fram í félagsheimilinu í Sandgerði klukkan 16.00.

Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf.

Gestir fundarins verða Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Þá munu þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu taka þátt í fundinum.

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi mynda 33 félög sjálfstæðismanna og fulltrúaráð í kjördæminu.

Suðurkjördæmi er landfræðilega stærsta kjördæmi landsins og í því eru rúmlega þrjátíu þúsund kjósendur í 20 sveitarfélögum. Það nær frá sveitarfélaginu Garði í vestri til Hornarfjarðar í austri.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk 9120 atkvæði í alþingiskosningunum í vor, eða 36% atkvæða.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi eru Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, Kjartan Ólafsson, Árni Johnsen og Björk Guðjónsdóttir.

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi heldur úti vefsíðunni www.xdsudur.is. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um starfsemi flokksins í kjördæminu, segir í frétt frá kjördæmisráðinu.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024