Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Kjartan í 2. sæti og opnar kosningaskrifstofu í bílskúrnum
Mánudagur 23. febrúar 2009 kl. 12:40

Kjartan í 2. sæti og opnar kosningaskrifstofu í bílskúrnum

Kjartan Ólafsson þingamaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti lista flokksins í komandi kosningum. Eins og aðrir sem ætla sér í framboð í komandi prófkjörum er Kjartan byrjaður að undirbúa prófkjörs baráttuna.

Kjartan hefur verið í óðaönn að undirbúa opnun kosningaskrifstofu en hún verður að þessu sinni í bílskúrnum hjá þingmaninnum. „Já, það þýðir ekkert annað en að nýta það sem hægt er og það kemur ekki til greina að bruðla í einhverja vitleysu. Það er nauðsynlegt að við frambjóðendurnir sínum það í verki að við kunnum að spara og fara með peninga,“ sagði Kjartan sem var í óðaönn að standsetja skúrinn á laugardaginn en kjördæmisráð ungra Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi fengu að prufkeyra skrifstofuna í heimsókn sinni til þingmannsins á laugardag.

Kjartan sem er formaður samtaka hægri þingmanna á Norðulöndum segist vera hlyntur ákveðinni endurnýjun á listanum í vor. „Það er mikið af kraftmiklu nýju fólki að bjóða sig fram og það eru spennandi tímar framundan hjá okkur. Ég býð mig fram vegna minnar reynslu og þekkingar á svæðinu ég vona að við náum að velja traust og duglegt fólk í prófkjörinu sem saman mun leiða listann til góðra verka,“ segir Kjartan í tilkynningu til Víkurfrétta.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024