Keflvíkingar kynda upp fyrir leik
Fyrir leik Keflavíkur og Grindavíkur í kvöld mun kvennaráð Keflavíkur grilla hamborgara frá kl.18:15 í félagsheimili Keflavíkur. Keflvíkingar eiga frábæra aðstöðu á efri hæð íþróttahússins við Sunnubraut og er lítið mál að tölta þangað upp og allir velkomnir. Þaðan er frábært útsýni yfir grænan og flottan Nettóvöllinn og fátt er skemmtilegra í aðdraganda leiks en spá í leikinn framundan með öðrum Keflvíkingum. Frábært að fylgjast með upphitun sinna manna og splæsa á sig borgara í leiðinni. Í seinasta leik var Einar Orri, nr. 6, maður leiksins. Í kvöld fær sjötti viðskiptamaður grillsins sína máltíð fría - verður það þú?