Lögreglan á Suðurnesjum er með myndavél í óskilum sem embættið vill endilega koma til réttra eigenda. Nokkrar myndir eru í vélinni af fólki sem er í ferðalagi erlendis. Ef þú kannast við fólkið á myndunum þá vinsamlegast hafðu samband við lögregluna í síma 4201700 á dagvinnutíma.